Umsóknarfrestur fyrir NEATA-hátíð á Akureyri er 15. febrúar
Click here for English Þann 15. febrúar nk. rennur út frestur fyrir aðildarfélög Bandalagsins til að sækja um að koma með sýningu á Norður-Evrópsku leiklistarhátíðina á Akureyri 10.–15. ágúst 2010. Á hátíðinni verða sýndar 2-3 íslenskar sýningar og mun valnefnd velja þær úr hópi umsækjenda. Þema hátíðarinnar er Maður – Náttúra og einkunnarorðin eru Af hjartans list. Hátíðin beinir sjónum að manneskjunni og samskiptum hennar við náttúruna, bæði hvað varðar óblíð náttúruöflin og mannlega náttúru; eilífa baráttu við hatur, ástríður, fordóma og svo mætti lengi telja. Tímalengd sýninga má ekki fara yfir 90 mínútur. Skila skal umsóknum með myndbandsupptökum...
Read More


