Drepfyndinn farsi hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar
Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýndi 20. febrúar sl. hinn rómaða gamanleik Kjartans Ragnarssonar, Blessað Barnalán. Leikstjóri er Lárus Vilhjálmsson en hann hefur leikstýrt fjölda verka hjá leikfélaginu og er skemmst að minnast hinnar bráðskemmtilegu Ráðskonu Bakkabræðra. Blessað Barnalán er sýnt í leikhúsi félagsins í Gamla Lækjarskóla við lækinn í Hafnarfirði. Bent skal á að áhorfendafjöldi er takmarkaður vegna lítils rýmis og því betra að tryggja sér miða í tíma. Blessað Barnalán sem er sprenghlægilegur farsi með hurðaskellum, misskilningi og skemmtilegum uppákomum hefur verið sýndur um allt land um árabil og fengið frábærar viðtökur en hann hefur ekki verið settur á svið hér...
Read More


