Author: lensherra

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir Emil í Kattholti

Laugardaginn 13. mars frumsýnir Leikfélag Hveragerðis leikritið um strákskrattann og ólátabelginn Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren, í þýðingu Vilborgar Dagbjartsdóttur. Leikstjórinn að þessu sinni er Sigurður Blöndal og þekkir hann vel til félagsins því hann leikstýrði meðal annars Kardimommubænum og Dýrunum í Hálsaskógi við góðan orðstír. Yfir 30 manns hafa lagt hönd á plóg til að láta þessa sýningu verða að veruleika og var leikfélagið í góðu samstarfi við grunnskólann í Hveragreði við smíði á leikmunum. Einnig láta nokkrir nemendur skólans ljós sitt skína í sýningunni. Með helstu hlutverk fara Dagbjartur Kristjánsson sem Emil, Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir sem Ída, Gunnar Þór Jónsson...

Read More

Aukasýningar á Sjöundá

Halaleikhópurinn frumsýndi 5. febrúar sl. Sjöundá – Svartfugl Gunnars Gunnarssonar, nýja leikgerð eftir leikstjórann Ágústu Skúladóttur, Þorgeir Tryggvason og leikhópinn. Sýningin hefur vakið mikla athygli og fengið góða dóma. Nú hefur verið ákveðið að bæta við aukasýningum laugardaginn 13. mars kl. 20.00 og sunnudaginn 14. mars kl. 17.00. Þegar er að verða fullt á fyrri sýninguna. Verkið fjallar um eitt þekktasta sakamál Íslandssögunnar, morðin á Sjöundá og réttarhöldin yfir Bjarna Bjarnasyni og Steinunni Sveinsdóttur. Þeim var gefið að sök að hafa lagt á ráðin og banað mökum sínum. Tónlist og áhrifshljóð í verkinu eru samin af Einari Andréssyni og...

Read More

Styrkir til atvinnuleikhópa 2010

Tilkynnt var fyrir skemmstu hvaða atvinnuleikhópar fengju styrk til uppsetninga verka árið 2010. Alls sóttu 73 aðilar um styrki til 95 verkefna auk sjö umsókna um samstarfssamninga. Á fjárlögum 2010 eru alls 64,9 millj.kr. til starfsemi atvinnuleikhópa. Af þeirri upphæð eru 4,5 millj. kr. eyrnamerktar skrifstofu Sjálfstæðu leikhúsanna og því ekki til úthlutunar. Samtals er úthlutað til einstakra verkefna 36.380 þús. kr. og samtals er úthlutað til samstarfssamninga 22.500 þús.kr. Í leiklistarráði eru Guðrún Vilmundardóttir, formaður, skipuð án tilnefningar, Jórunn Sigurðardóttir tilnefnd af Leiklistarsambandi Íslands, og Dofri Hermannsson, tilnefndur af Bandalagi sjálfstæðra leikhúsa.Ég og vinir mínir/Álfrún Helga Örnólfsdóttir o.fl....

Read More

Gullna hliðið í Lyngbrekku

Leikdeild Ungmennafélagsins Skallagríms í Borgarnesi frumsýnir Gullna hliðið í félagsheimilinu Lyngbrekku föstudaginn 5. mars kl. 20.30. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson.Hátt í 30 manns koma að sýningunni með einum eða öðrum hætti. Gullna hliðið er eftir eitt af öndvegisskáldum Íslendinga, Davíð Stefánsson frá Fagraskógi og hans þekktasta leikrit, enda hefur Gullna hliðið unnið sér verðskuldaðan sess meðal sígildra íslenskra leikrita. Í Gullna hliðinu fylgjast áhorfendur með kerlingu sem leggur á sig mikið ferðalag og ómælt erfiði til að reyna að tryggja að sál Jóns, eiginmanns hennar, komist í Himnaríkisvistina fyrir innan Gullna hliðið. Á því ferðalagi verða margir misjafnlega kynlegir...

Read More

Leikfélag Hörgdæla frumsýnir Lífið liggur við

Fimmtudaginn 4. mars frumsýnir Leikfélag Hörgdæla grafalvarlega skrifstofufarsann Lífið liggur við, eftir Hlín Agnarsdóttur, á Melum í Hörgárdal. Sýningin hefst kl. 20:30. Leikstjóri er Saga G. Jónsdóttir. Þetta er nýlegt leikrit og var fyrst sýnt hjá Stúdentaleikhúsinu árið 2007 í leikstjórn höfundar. Hér er á ferðinni gamanleikur, þó með alvarlegum undirtóni, sem gerist á Íslandi í dag og á vel við, einkum eins og aðstæður eru í þjóðfélaginu. Það eru krepputímar í fyrirtækinu Mannleg samskipti Group þar sem forstjórinn, Guðmundur, stendur á krossgötum. Eiginkonan er að yfirgefa hann og sumir starfsmenn fyrirtækisins kunna ekki almenna mannasiði. Á nokkrum fundum í...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert