Leikfélag Keflavíkur frumsýnir barnaleikrit
Næstkomandi föstudag, þann 12. mars klukkan 18.00, frumsýnir Leikfélag Keflavíkur leikritið Mér er alveg sama þó einhver sé að hlægja að mér eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur. Leikritið segir frá tröllastelpunni Lónu sem er að byrja í skóla með mannabörnum en á ekki sjö dagana sæla þar sem hún lendir í því að vera lögð í einelti. Leikfélagið fer heldur ótroðnar slóðir í þessari uppsetningu sinni þar sem öll leikstjórn, staðfærsla, ljósahönnun og hljóðhönnun er í höndum leikhópsins sem hefur lagt á sig mikið til þess að sjá sýninguna verða að veruleika. Hér er um að ræða bráðfjöruga og skemmtilega sýningu...
Read More


