Author: lensherra

Ómynd á artFart

Leikhópurinn Fröken Fix, í samstarfi við Leikfélag Hafnarfjarðar, frumsýnir nýtt íslenskt verk næstkomandi föstudag á sviðslistahátíðinni artFart. Verkið ber nafnið Ómynd og er skrifað af Guðrúnu Sóleyju Sigurðardóttur og Aldísi Davíðsdóttur, sem eru jafnframt stofnendur Fröken Fix. Ómynd tekur á innilokun, eymd og erfiðum aðstæðum, en einnig hvernig hægt er að flýja þær með ímyndunaraflinu einu saman. Verkið er því í senn dramatískt, spennandi og sprenghlægilegt. Ómynd fjallar um tvær systur sem eru á flótta undan óskilgreindri ógn. Þær enda ofan í kjallara þar sem þær bíða þess að þriðja systirin komi með mat og aðstoð. Ekki líður á...

Read More

Lísa í Undralandi frumsýnt í Mosfellsbæ

Föstudaginn 20. ágúst kl. 20 frumsýna 13-16 ára nemendur Leikgleði námskeiða Leikfélags Mosfellssveitar söngleikinn Lísa í Undralandi eftir sögu Lewis Carroll. Þýðingu leikgerðar annaðist Agnes Þ. Wild og umsjón tónlistar annast Sigrún Harðardóttir en þær eru jafnframt leikstjórar. Agnes stundar nám í East 15 leiklistarskólanum í Bretlandi og Sigrún tónlistarnám í Listaháskóla Íslands. Krakkarnir hafa staðið í ströngu undanfarið við að æfa leikritið sem segir frá stúlkunni Lísu, sem dettur ofan í kanínuholu og lendir í ýmsum ævintýrum í Undralandi. Eftir hlé er sögð önnur saga af Lísu sem nefnist „Í gegnum glerið“. Í leikritinu kynnist Lísa ýmsum kunnum...

Read More

Sviðslistahátíðin artFart 5. – 22. ágúst

Sviðslistahátíðin artFart fer fram í Reykjavík dagana 5. – 22. ágúst. Dagskráin í ár er æsispennandi og hefur hátíðin aldrei verið stærri. Það er einnig óhætt að segja að hátíðin sé stærsta sviðslistahátíðin á Íslandi í dag Þema hátíðarinnar í ár er óhefðbundin rými og mun hún mun fara fram um alla Reykjavík, til dæmis á BSÍ, Norðurpólnum, Útgerðinni,  Elliðaárdalnum, galleríum og kjöllurum. Meðal hápunkta í ár eru ókeypis vinnustofa með breska listamanninum Richard DeDomenici sem hefur meðal annars sýnt í Tate Modern, sýning norska leikhópsins Stella Polaris á Menningarnótt, sýning sem var frumsýnd á Ólympíuleikunum í Lillehammer, auk...

Read More

Hans klaufi um Verslunarmannahelgina

Leikhópurinn Lotta verður á ferð og flugi um Verslunarmannahelgina með leiksýninguna sína Hans klaufa. Laugardaginn 31. júlí verður Hans klaufi sýndur á Flúðum klukkan 13 og á Laugarvatni klukkan 17 og á sunnudaginn 1. ágúst í Munaðarnesi klukkan 13 og í Húsafelli klukkan 17. Verkið skrifaði Ljóti hálfvitinn Snæbjörn Ragnarsson en auk Hans klaufa koma við sögu aðrar þekktar persónur úr ævintýraheiminum. Þar má til dæmis nefna Öskubusku og froskaprinsinn. Verkið segir frá því þegar Aron prins og aðstoðarmaður hans, Hans klaufi, koma heim úr löngu ferðalagi. Þegar heim kemur komast þeir að því að ekki er allt með...

Read More

Alþjóðleg leiklistarhátíð á Akureyri 10-15. ágúst

Dagana 10.-15. ágúst heldur Bandalag íslenskra leikfélaga fjölþjóðlega leiklistarhátíð í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Hátíðin er á vegum NEATA, Norður-Evrópska áhugaleikhúsráðsins og verða þar sýndar leiksýningar frá öllum Norðurlöndunum, Lettlandi, Litháen, Rúmeníu og Frakklandi. Hátíðin verður sett að kvöldi þriðjudagsins 10. ágúst og verða allar leiksýningar og aðrir viðburðir hátíðarinnar í Menningarhúsinu Hofi. Alls er reiknað með að um 250 manns taki beinan þátt í hátíðinni. Þema hátíðarinnar er Maður – Náttúra og einkunnarorðin eru Af hjartans list
. Hátíðin beinir sjónum að manneskjunni og samskiptum hennar við náttúruna, bæði hvað varðar óblíð náttúruöflin og mannlega náttúru; eilífa baráttu við...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert