Author: lensherra

Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum

Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum vegna sjöttu úthlutunar úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til og með 13. september 2010, en úthlutað verður í október. Annars vegar er auglýst eftir hugmynd að leikriti, hinsvegar eftir hugmynd að leiksmiðju- eða tilraunaverkefni. Nánari upplýsingar og fyrirmæli um gerð umsókna er að finna á heimasíðu Þjóðleikhússins. Umsóknir skal senda með tölvupósti á netfangið prologos@leikhusid.is eða í almennum pósti, merktar: Þjóðleikhúsið, Prologos, Lindargötu 7, 101 Reykjavík. Leikritunarsjóðurinn Prologos hefur nú starfað við Þjóðleikhúsið í rúm tvö ár og er honum ætlað að efla íslenska leikritun og hvetja til nýsköpunar í leikhúsinu. Óhætt er að segja...

Read More

Tjarnarbíó opnað 1. október

Eftir gagngerar endurbætur Reykjavíkurborgar mun Tjarnarbíó opna aftur 1. október nk. en til stóð að loka húsnæðinu fyrir fimm árum vegna slæms ástands. Sjálfstæðu leikhúsin – SL hafa séð um reksturinn í nærri 20 ár fyrir borgina og munu halda því áfram. Eftir stefnumótunarvinnu hjá SL 2003 var ákveðið að gera úttekt á húsnæðinu og koma með tillögur að endurbótum til borgarinnar. Markmið SL með tillögunum að á endurbótum í Tjarnarbíó var að skapa aðstöðu fyrir sjálfstæða atvinnuleikhópa, tónlistar,- og kvikmyndagerðarfólk þar sem þeim gefst tækifæri, rými og frelsi til listsköpunar. Mikilvægt væri að gefa menntuðum listamönnum færi á...

Read More

Örverk um Ágúst eins og hann leggur sig

Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir áttunda örverkið af 12 um áráttur, kenndir og kenjar, fimmtudaginn 26. ágúst kl. 12.30 í Útgerð Hugmyndahúss háskólanna. Verkið, sem heitir Örverk um Ágúst eins og hann leggur sig, er sýnt í beinni útsendingu á veraldarvefnum á slóðinni www.herbergi408.is en þar er jafnframt hægt að skoða fyrri verk úr örverkaröðinni. Leikstjóri er Steinun Knútsdóttir. Örverkin 12 taka á áráttum, kenndum og kenjum sem hafa áhrif á mannlega tilvist í Reykjavík 2010 og eru kennd eftir þeim mánuði sem þau eru flutt í. Viðfang verkanna ræðst af því sem hrærist í samtímanum og hefur áhrif á líf...

Read More

Námskeið í leikhúslýsingu fyrir áhugaleikhús í september

Laugardagana 4., 11. og 18. september frá kl. 9:00 – 13:00 verður boðið upp á námskeið í leikhúslýsingu í Tækniskólanum, Skólavörðuholti. Námskeiðið er ætlað fólki á öllum aldri og verða kennd helstu atriði við hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur o.fl. Fjallað er um eðlisfræði ljóss og litafræði, hugmyndafræði lýsingar, upphengingu og staðsetningar, leikhúsljós og önnur tæki, skipulag, teikningar og fleira. Kennari er Benedikt Axelsson lýsingahönnuður og námskeiðsgjald er 26.000 kr. Hægt er að skrá sig hérNánari upplýsingar fást í Endurmenntunarskólanum í s. 514 9602 eða á endurmenntun@tskoli.is. Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með...

Read More

Leikfélagið Sýnir frumsýnir Allir komu þeir aftur

Leikfélagið Sýnir  frumsýnir leikverkið Allir komu þeir aftur í dag, þann 19. ágúst klukkan 18:00 í Indjánagili í Elliðaárdalnum, í samvinnu við Sviðslistahátíðina ArtFart. Áætlað er að hafa sex sýningar alls. Í verkinu mætast nútíð og fortíð í umgjörð náttúraflanna. Sagan sem er tímalaus undirstrikar mannlegt eðli þegar uppreisn og uppgjöf mætast. Leikstjóri er Aldís Davíðsdóttir en vinnur einnig leikgerðina sem er lauslega er byggt á leikritinu Widows eftir Ariel Dorfman og Tony Kushner. Verkið gerist í smáþorpi í litlum dal og hefur það áfall dunið á þorpsbúum að allir mennirnir voru numdir á brott vegna uppreisnar gegn kerfinu....

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert