Ódauðlegt verk um draum og veruleika frumsýnt 27. október
Sjónleikur Áhugaleikhúss atvinnumanna, Ódauðlegt verk um draum og veruleika, verður frumfluttur Miðvikudaginn 27.október í Útgerð Hugmyndahúss háskólanna. Verkið er fjórða í röð fimm Ódauðlegra verka um mannlegt eðli og tilvist og gerist á huglægum stað handan tíma og rýmis. Verkið spyr hvort sé raunverulegra, það sem fer fram í huga fólks eða það sem sýnilega hendir í veraldlegum heimi. Erum við saman í þessu? Hver metur? Hver upplifir? Hverjum er sama? Leikstjóri og höfundur er Steinunn Knútsdóttir. Verkin fimm eru rannsókn á áráttuhegðun mannkyns og ófullkomleika. Þau feta sig inn í augnablikið þar sem maðurinn stendur berskjaldaður frammi fyrir...
Read More


