Author: lensherra

Sýningar á Sindra silfurfiski hefjast að nýju 6. mars

Sunnudaginn 6. mars hefjast aftur sýningar á barnaleikritinu Sindri silfurfiskur, sem vakti mikla hrifningu leikhúsgesta á öllum aldri á síðasta leikári. Í sýningunni er beitt sérstakri ljósatækni til þess að skapa undraveröld hafsins og skrautlegir fiskar, stórir og smáir, synda fyrir augum áhorfandans. Þetta er undurfallegt ævintýri um að það sé allt í lagi að vera öðruvísi en aðrir, og vera sáttur við sjálfan sig eins og maður er. Sýningar verða i Kúlunni, barnaleikhúsi Þjóðleikhússins á sunnudögum kl. 13.30 og 15.00 í mars og apríl. Sýningin hlaut tilnefningu til Grímunnar sl. ár og var boðið að sýna á sænsku...

Read More

Blessað barnalán frumsýnt í Hveragerði

Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson. Leikstjóri er Sigurður Blöndal sem enn á ný leggur Leikfélaginu til krafta sína. Fyrsta leikritið sem hann leikstýrði fyrir 10 árum síðan var Týnda teskeiðin, líka eftir Kjartan. Hann leikstýrði einnig  Emil í Kattholti, Dýrunum í Hálsaskógi og Kardemommubænum hjá Leikfélaginu sem öll hafa náð metaðsókn. Leikritið er sprenghlægilegur farsi sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Frumsýning verður 12. mars kl. 21.00. Leikarar eru 11  og með helstu hlutverk fara Hafdís Guðmundsdóttir, Aðalheiður Ásgeirsdóttir, Guðmundur Erlingsson og Viktoría Kristinsdóttir. Til gamans má geta þess...

Read More

Skemmtun sem kitlar hláturtaugarnar

Leikdeild UMF VökuÁ þriðju hæð / Amor ber að dyrumLeikstjóri Þorsteinn Logi Einarsson Mér var boðið í heimsókn upp í Þjórsárver á dögunum til að heimsækja leikdeild UMF. Vöku og sjá afrakstur erfiðis þeirra undanfarnar vikur. Það þurfti ekki kurteisissaka við til að þekkjast boðið enda ekki vanur öðru en góðum og skemmtilegum sýningum hjá leikdeild Vöku. Að þessu sinni var mér boðið upp Á þriðju hæð og að fylgjast með þegar Amor ber að dyrum. Sýningin var í raun tveir farsakenndir einþáttungar, Á þriðju hæð eftir Vilhelm Mejo og Amor ber að dyrum eftir George Falk. Verkin eiga...

Read More

Einþáttungahátíð í Mosfellsbæ 29. apríl

Í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga  dagana 29. apríl til 1. maí verður haldin einþáttungahátíð í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ. Hefst hún kl. 14. föstudaginn 29. apríl og stendur fram á kvöld eftir því þátttaka leyfir. Öll aðildarfélög Bandalagsins eru eindregið hvött til að taka þátt í hátíðinni.   Þátttökuskilyrði eru eftirfarandi:- Hámarkslengd leikþátta er 30 mínútur.- Umgjörð sýninga skal vera eins einföld og framast er unnt.- Ef heildarlengd sýninga fer yfir tímamörk hátíðarinnar verða þau félög sem senda flesta þætti beðin um að fækka þeim.- Frestur til að tilkynna þátttöku leikþátta á hátíðinni rennur úr 15. apríl. Umsóknareyðublöð...

Read More

Aðeins ein aukasýning á Lé konungi

Fullt var upp í rjáfur og margir þurftu frá að hverfa á síðustu sýningu á Lé konungi á föstudagskvöldið. Síminn hafði logað alla vikuna og tölvuskeytum rignt inn með áskorunum um að bæta við aukasýningu, þegar ljóst var í hvað stefndi, en aðstæður í leikhúsinu voru með þeim hætti að ekki var hægt um vik. Það tókst hinsvegar að hliðra til og koma við einni aukasýningu og verður hún n.k. fimmtudag 3. mars kl: 20:00. Þjóðleikhúsinu er ljúft og skylt að verða við óskum þeirra fjölmörgu sem skorað hafa á leikhúsið og mega ekki til þess hugsa að missa...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert