Author: lensherra

Hárið í Hofi um páskana

Söngleikurinn Hárið verður fumsýndur á vegum Silfurtunglsins í Menningarhúsinu Hofi þann 15. apríl og verður sýndur mjög þétt yfir páskana. Þetta er einn vinsælasti söngleikur heims og höfðar til fólks á öllum aldri. Leikstjóri er Jón Gunnar Þórðarson en hann hefur tvisvar sinnum áður sett upp sýningar undir merkjum Silfurtunglsins, Fool For Love í Austurbæ og leikritið Lilja sem sett var upp í Manchester, Englandi.   Eyþór Ingi Gunnlaugsson mun fara með aðalhlutverkið, hlutverk Bergers. Hann fór á kostum í hlutverki Riff Raffs í Rocky Horror og er nú kominn tími á aðalhlutverk hjá þessum hæfileikaríka Dalvíkingi. Með hlutverk...

Read More

Bót og betrun hjá Leikfélagi Kópavogs

Leikfélag Kópavogs frumsýnir föstudaginn 11. mars, sprenghlægilegan gamanleik sem ber yfirskriftina Bót og betrun – fimm hurða farsi úr félagslega kerfinu. Verkið er eftir Michael Cooney, son farsameistarans Ray Cooney sem er íslenskum leikhúsgestum að góðu kunnur, m.a. fyrir verkið Nei, ráðherra sem sýnt er í Borgarleikhúsinu um þessar mundir. Hörður Sigurðarson þýddi verkið úr ensku og er hann jafnframt leikstjóri.   Bót og betrun segir frá bótasvindlaranum Eric Swan sem grípur til svika þegar hann missir vinnuna. Svindlið fer hins vegar úr böndunum og Eric kemst að því að það er stundum einfaldara að komast á bætur en...

Read More

Hedda Gabler frumsýnt í Kassanum

Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 10. mars leikritið Hedda Gabler eftir Henrik Ibsen í Kassanum. Í þessu sígilda leikriti ræðst Ibsen að kjarna þeirra borgaralegu lífsgilda sem móta líf nútímamanna og stýra löngunum þeirra og ótta. Að lokinni sex mánaða brúðkaupsferð kemur Hedda Gabler heim í glæsilega einbýlishúsið sitt. Fastráðning eiginmanns hennar við háskólann er á næsta leiti, tilveran er þægileg og framtíðin hefur verið kortlögð. En það líður ekki nema sólarhringur þar til Heddu hefur tekist að mölva þessa fullkomnu mynd. Hvenær verður krafa nútímamannsins um öryggi að rammgerðu fangelsi? Og hvað gerist þegar við reynum að sleppa út? Er...

Read More

Með vífið í lúkunum í Reykholtsdal

Leikhópur Ungmennafélags Reykdæla frumsýndi leikritið „Með vífið í lúkunum“ eftir breska leikskáldið Ray Cooney í Logalandi í Reykholtsdal í 4 mars sl. Áhorfendur létu í ljós ánægju sína með grín og glens og mátti heyra hlátrasköllin út um allan sal þegar mest gekk á uppi á sviðinu. Þar túlkuðu leikendur litríkan farsa sem snýst um að greiða úr lygaflækjum aðalsöguhetjunnar John Smith, sem starfar sem leigubílstjóri í London. Hann lifir tvöföldu lífi og það getur haft sínar óþægilegu afleiðingar. Guðrún Jónsdóttir skrifaði eftirfarandi fyrir Skessuhorn. Leikendur eru átta talsins og leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson sem oft áður hefur leikstýrt...

Read More

Leiklistarskóli Bandalagsins 2011

Skólinn starfar að Húnavöllum í A-Húnavatnssýslu dagana 11. til 19. júní. Haldin verða þrjú námskeið og boðið verður uppá aðstöðu fyrir höfunda. Í fyrra var lögð áhersla á byrjendanámskeið og fylgt er þeirri hefð að bjóða upp á framhaldsnámskeið í kjölfarið. Ágústa Skúladóttir mun því mæta aftur og kenna Leiklist II sem byggir ofan á þann góða grunn sem hún lagði í fyrra. Sigrún Valbergsdóttur mætir einnig aftur til leiks. Hún kennir nú Leikstjórn II þar sem nemendum gefst kostur á að dýpka enn skilning sinn og reynslu af leikstjórn. Reyndari leikurum stendur til boða námskeið Steinunnar Knútsdóttur þar...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert