Leikhúsið í þjónustu mannúðar
Ávarp á alþjóðlega leiklistardeginum 27. mars 2011 Samkoman í dag, á alþjóðlegum degi leiklistarinnar, er sönn mynd af ótrúlegri getu leikhússins að virkja fólk og byggja brýr. Hafið þið einhvern tíman hugsað út í það hve öflugt tæki leikhúsið gæti verið til friðar og sátta? Ríkisstjórnir fjárfesta ógnarsummur í friðarsveitum á átakasvæðum, en fáir líta á raunverulega möguleika leikhússins til að leysa deilur og átök manna í milli. Hvernig eiga jarðarbúar að skapa alheims frið þegar aðferðirnar og tækin koma frá framandi og kúgandi öflum? Leikhúsið breytir mannssálinni á margvíslegan hátt þegar hún er fangi ótta og vantrausts....
Read More


