Author: lensherra

Í útlegð hjá ömmu

Leikfélag DalvíkurHeima hjá ömmuLeikstjóri: Aðalsteinn Bergdal Leikfélag Dalvíkur er eitt af þessum kraftmiklu áhugaleikfélögum sem við höfum hér norðanlands. 25. mars s.l. frumsýndi Leikfélag Dalvíkur Heima hjá ömmu eftir Neil Simon í leikstjórn Aðalsteins Bergdals. Verkið lýsir óvenjulegu heimilishaldi hjá aldraðri þýskri konu og tveimur sonarsonum hennar í New York árið 1942, en hún neyðist til að taka þá í fóstur. Leikritið hefur hlotið fjölda verðlauna þar á meðal Tony-verðlaunin og Pulitzer-verðlaunin. Júlíus Júlíusson, fyrrverandi formaður LD, fór á sýninguna og hreifst af. Ég skellti mér með fjölskylduna á sýningu númer tvö. Um leið og við komum inn í...

Read More

Uppi hvað! – Hjólastólasveitin í Gaflaraleikhúsinu

Miðvikudagskvöldið 13. apríl  kl. 20.00 mun uppistandsgengið Hjólastólasveitin enn og aftur tröllríða Gaflaraleikhúsinu og flytja frumsamið grínefni. Fjórir fjörugir uppistandarar – þrír í hjólastólum og einn á skrikkjandi fótum! Gestaleikari kvöldsins er hinn heimsfrægi íslenski uppistandari Ari Eldjárn.   Tilveran verður skoðuð á spaugilegan hátt. Hinn víðförli Leifur sem verður með uppistand á Hvannadalshnjúk í byjun júní (frítt inn) segir okkur sánasögur frá Finnlandi og how to bond with tengdó in ten ways. Elva Dögg sem er á leið að fá sér fjarstýringu á heilann ætlar að ræðu um hvernig er hafa barnavernd á speeddial og hvernig mjólkurfernan ratar...

Read More

Á svið! sýnt í Ólafsvík

Leikfélag Ólafsvíkur frumsýnir föstudaginn 8. apríl, kl. 20.00 leikverkið Á svið! eftir Rick Abbot  í leikstjórn Gunnsteins Sigurðssonar. Sýnt verður í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík. 2. sýning verður sunnudaginn 10. apríl kl. 20.30 og þriðja og lokasýningin föstudaginn 15. apríl kl. 20.00 Leikverkið Á svið! fjallar um áhugaleikfélag sem er að setju upp sakamálaleikritið Hið fúla fólskumorð sem er frumraun höfundar í leikritun. Þegar leikritið hefst er stutt í frumsýningu og margt sem er ekki að ganga upp. Má þar helst nefna að höfundurinn er sífellt að koma með breytingar á framvindu leikrtsins, leikstjóri sem er á barmi taugaáfalls, misupplagðir...

Read More

Einkamál Árna Hjartarsonar brátt opinberuð

Einkamál.is er nýjasta leikrit Árna Hjartarsonar. Dramatískur fjölskyldugamaleikur um samtímafjölskyldu í heimatilbúnum vanda sem Hugleikur æfir nú í húsnæði félagsins við Eyjarslóð. Ólíkt mörgum Hugleikshöfundum sækir Árni sér jafnan efnivið í samtímamál, jafnvel þjóðfélagsleg álitamál, og á það stundum til að vera forspár. Af því tilefni er rétt að taka fram að leikritið er skrifað áður en umræðan um staðgöngumæðrun fór af stað. Hvað gerir barnelskur karl þegar hann kemst að því að einkasonur hans og tengdadóttir hafa ákveðið að eignast ekki börn? Hann tekur málið auðvitað í sínar hendur. En þó hann sé reyndar góður í stærðfræði þá...

Read More

Gaukssaga sýnd í Félagsheimilinu Árnesi

Sagan um Gauk Trandilsson í Stöng var til, hana átti að rita eftir Njálu í Möðruvallabók, en því miður er sagan nú glötuð. Annað hvort brann hún í handritabrunanum mikla í Köbenhavn eða bókin sökk með handritaskipi því er fórst í hafi á þrettándu öld. En nú hefur Vilborg Halldórsdóttir leikkona- og leikstjóri bætt úr þessu, skrifað leikverk um ævi og ástir Gauks sem leikdeild Ungmennaféalgs Gnúpverja sýnir nú í leikstjórn hennar í félagsheimilinu Árnesi.   Gauk Trandilsson leikur Þórður Freyr Gestsson og Þuríði Arngeirsdóttur húsfreyju á Steinastöðum leikur Edda Pálsdóttir. Tónlistarstjórn er í höndum Þórdísar Heiðu Kristjánsdóttur tónlistarmiðlara,...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert