Ég var að koma af skemmtilegri leiksýningu!

Jólasveinar einn og …… fjórtán? Hrekkjalómarnir okkar ljúfu, synir Grýlu og Leppalúða, hafa löngum verið innblástur ýmsum höfundum, bæði til sagna, ljóða og leikrits.  Um þessar mundir sýnir Freyvangsleikhúsið barnasýninguna 14. jólasveinninn, sem er leikgerð unnin upp úr samnefndri bók eftir Ásgeir Ólafsson Lie, en bókin kom út fyrir sex árum síðan. Það er alltaf […]

Fjórtándi jólasveinninn í Freyvangi

Fjórtándi jólasveinninn er frumsamið barnaleikrit eftir Ásgeir Ólafsson Lie og segir sögu af hinum hefðbundnu jólasveinunum 13 sem og Grýlu, Leppalúða og jólakettinum. Nema í þessu leikverki eru jólasveinarnir ekki bara þrettán heldur er þarna sá fjórtándi sem enginn átti von á. Þetta jólaævintýri er hugljúf jólasaga sem segir söguna af barni sem kemur óvænt […]

Blái hnötturinn á Flateyri

Laugardaginn 16. nóvember kl. 16:00 frumsýnir Leikfélag Flateyrar hið æsispennandi ævintýri um Bláa hnöttinn eftir Andra Snæ Magnason. Sýnt verður í Samkomuhúsinu á Flateyri og er  sýningin skemmtileg fyrir unga sem aldna. Í þessu spennandi og hlýja leikriti verða villibörnin sem búa á Bláa hnettinum logandi hrædd þegar geimskip brotlendir á plánetunni þeirra. Þar er […]

Uppselt fram að jólum í Ávaxtakörfunni

Leikfélag Hveragerðis frumsýndi Ávaxtakörfuna í lok september og hafa viðtökurnar ekki staðið á sér. Uppselt er á allar sýningar fram að jólum en síðasta sýning fyrir jól er sunnudaginn 8. desember. Þá fá leikarar og baksviðsfólk kærkomið jólafrí en þá verður búið að sýna 22 sýningar fyrir fullu húsi. Það er alltaf ánægjulegt þegar sýningar […]

Svarta kómedían á Borg

Leikfélagið Borg sýnir hinn sprenghlægilega farsa Svörtu kómedíuna í Félagsheimilinu Borg. Svarta kómedían er sprenghlægilegur farsi um ungan mann sem þarf að kljást við þrjá elskhuga sína, tannhvassan verðandi tengdaföður, og heyrnalausan miljónamæring – og það allt í algjöru rafmagnsleysi á regnvotu sunnudagskvöldi í London ca. 1965.  Ungur listamaður og mikill elskandi að nafni Brindsley […]

Auglýst eftir leikskáldum og leiklesurum

Halaleikhópurinn skipuleggur leiklestra af ýmsu tagi í vetur. Í tilefni að því sendir hópurinn eftirfarandi skilaboð til allra sem áhuga kunna að hafa: Ertu blundandi skúffuskáld? Áttu handrit að leikverki sem þig langar að hlusta á leiklesið ? Handritin þurfa ekki að vera fullbúin og þau mega vera drög eða hlutar – stutt eða löng […]

Leikfélag Blönduóss 80 ára

Leikfélagi Blönduóss heldur upp á 80 ára afmæli félagsins næstkomandi laugardag með viðburði í Félagsheimili Blönduóss. Saga leiklistar á Blönduósi spannar allt aftur til ársins 1897 en leikfélagið á staðnum var stofnað árið 1944. Í tilefni af þessu merkisafmæli verður sögusýning, sýndar gamlar upptökur af sviði og félagsstarfinu og veittar heiðursviðurkenningar svo eitthvað sé nefnt. […]

Allir á svið í Frumleikhúsinu!

Leikfélag Keflavíkur frumsýnir á föstudaginn farsann Allir á svið, í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Leikstjóri sýningarinnar er Rúnar Guðbrandsson sem hefur áratuga reynslu í leiklist. Farsinn Allir á svið er oft kallaður Drottning farsana enda er hér um að ræða sprenghlægilegt verk sem hefur slegið í gegn hvar sem það hefur verið sett upp. Sýningin […]

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga 2024

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga árið 2024 er komið út. Í því eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi áhugaleikfélaganna á síðasta leikári auk svipmynda úr sýningum og annars efnis. Ársritið má skoða hér og/eða hlaða því niður.

Ársrit 2024

Upplýsingar um starfsemi áhugaleikfélaganna leikárið 2023-24. Ársrit 2024 vefútgáfa Ársrit 2024 vefútgáfa – létt              

Alþjóðlega leiklistarhátíðin VALISE í Póllandi

The 38th International Theatrical Festival VALISE will take place in Łomża (Poland) on 29 May – 1 June 2025. Please find attached the festival regulations and application form. We would be extremely pleased if you would like to take part in our festival, therefore consider this message as a friendly invitation. As a preliminary, we […]

Listin að lifa í Litla leikhúsinu við Sigtún

Leikfélag Selfoss frumsýnir leikverkið Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur föstudaginn 25. október. Leikstjóri er Jónheiður Ísleifsdóttir. Sýningin fjallar um vinina Dúu, Duddu og Didda og er þeim fylgt gegnum lífið nánast frá vöggu til grafar með öllu því sem líf þeirra hefur upp á að bjóða, í blíðu og stríðu. Fimm leikarar eru […]

Leikfélag Sauðárkróks sýnir Ávaxtakörfuna

Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir Ávaxtakörfuna eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur í dag, þriðjudag 15. okt. Höfundur tónlistar er Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Leikstjóri er Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir. Æft hefur verið síðastliðnar sex vikur og hefur æfingatímabilið gengið mjög vel. 9 leikarar leika í sýningunni en um 40 manns eru í leikhópnum sem koma að sýningunni með einum eða […]

Æfingar á haustverki Leikfélags Selfoss á fullu

Leikfélag Selfoss hefur nú heldur betur slegið í klárinn eftir að hafa látið lítið fyrir sér fara síðustu tvö ár vegna framkvæmda við leikhúsið. Haustsýning leikfélagsins er leikritið Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur í leikstjórn Jónheiðar Ísleifsdóttur. Æfingar hófust um miðjan september og hafa gengið vel, mikil gleði er í leikhópnum og stjórn […]

Lokað föstudag 13. sept.

Lokað verður á Þjónustumiðstöð föstudaginn 13. september vegna fundar NEATA samtakanna í Noregi. Vefverslun Leikbúðarinnar ávallt opin.

Leiklistarnámskeið fyrir nýliða

Leikfélag Kópavogs býður upp á leiklistarnámskeið í byrjun september. Leiklistarnámskeiðið er ætlað nýliðum og fólki með minni leikreynslu. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun. Námskeiðið verður 18 klst. í heildina, 3 klst. í senn í 6 skipti og aldurstakmark er 20 ára. Nánari upplýsingar má fá á vef leikfélagsins, […]

Opnunartímar í sumar

Fastur opnunartími í Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga og Leikhúsbúð verður 9,00-12.00 til og með 30. september. Athugið að vefverslun Leikhúsbúðarinnar er áfram opin allan sólarhringinn. Afgreiðsla pantana gæti þó tekið ögn lengri tíma en venjulega. Fyrirspurnir má senda á info@leiklist.is.

Leiklistarskóla BÍL slitið í 27. sinn

Leiklistarskóla BÍL var slitið í 27. sinn sunnudaginn 23. júní að Reykjum í Hrútafirði. 52 nemendur luku þar námí á fjórum námskeiðum; Leiklist I, Leikritun I, Leikstjórn IV og Sérnámskeiði fyrir leikara. Daginn áður fór fram ógurleg leikhúsveisla þar sem fluttir voru alls 19 leikþættir sem unnið hafði verið með vikuna á undan. Skólanefnd og […]

Þjóðleikhúsið setur á laggirnar nýjan leikhússkóla

Þjóðleikhúsið hefur sett á laggirnar nýjan leikhússkóla, sem býður upp á einstakt tækifæri fyrir ungt fólk á aldrinum 18-22 ára, með brennandi áhuga á leikhúsi, til að kynna sér leikhús frá ólíkum hliðum og efla færni sína og þekkingu. Skólinn tekur til starfa í haust og inntökuferli hefst nú í maí. Leikhússkóli Þjóðleikhússins býður upp […]

Fríðuþættir Hugleiks

Sunnudaginn 26. maí kl. 16 sýnir leikfélagið Hugleikur Fríðuþætti í Leikhúsinu, Funalind 2 í Kópavogi. Aðeins þessi eina sýning. Og tilefnið er verðugt; höfundur verkanna – Fríða Bonnie Andersen er 60 ára og Hugleikur er 40 ára. Hér má sjá leikskrá sýningarinnar og þar er fallegt ávarp frá höfundi verkanna. Myndin er af henni Jonnu, […]

Fiðlarinn á þakinu er Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2024

Sýning Litla leikklúbbsins á Ísafirði á Fiðlaranum á þakinu hefur verið valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins af dómnenfd Þjóðleikhússins. Vala Fannell frá Þjóðleikhúsinu tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði á aðalfundi Bandalagsins fyrir stundu síðan. Vala var formaður dómnefndar Þjóðleikhússins en með henni sátu leikararnir Örn Árnason og Björn Thors. Umsögn dómnefndar um sýninguna: „Það er samdóma álit […]

Rangæingar með Vífið í lúkunum

Leikfélag Rangæinga frumsýnir hinn sívinsæla farsa Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney föstudaginn 3. maí í Njálsbúð.  Þýðandi verksins er Árni Ibsen og leikstjóri er Gunnsteinn Sigurðsson.  Sýningar eru í Nálsbúð eins og áður segir: Frumsýning föstudaginn 3. maí klukkan 20:00 2. sýning: 5. mai kl. 16:00 3. sýning 7. míi kl. 20:00 Miôapantanir […]

Hryllingur og sæla á Sauðárkróki

Leikfélag Sauðárkróks setur nú upp verkið Litlu hryllingsbúðina í leikstjórn Valgeirs Skagfjörð, en 13 manns fara með hlutverk í sýningunni. Litla hryllingsbúðin eftir Howard Ashman með tónlist eftir Alan Menken er verk sem flestir ættu að þekkja. Gísli Rúnar Jónsson þýddi leiktextannn en söngtextar eru í þýðingu Magnúsar Þór Jónssonar (Megasar). Söngleikurinn fjallar um hann […]

Masterclass um nánd í sviðsleik

AITA/IATA býður upp á masterclass námskeið á vefnum um nánd (intimacy) í sviðsleik, ætlað leikurum og leikstjórum. Námskeiðið verður haldið 21. apríl kl. 13.00 að íslenskum tíma. Kennari er Elodie Foray. Námskeiðsgjald er 20 EUR en meðlimir AITA/IATA fá 50% afslátt. Elodie Foray er leikskáld, leikstjóri og leikari frá Englandi. Námskeiðið fer fram á ensku. […]

Kjörbréf á aðalfund BÍL 2024

Félag þarf að vera innskráð til að geta sent inn kjörbréf. Hafið samband við Þjónustumiðstöð ef vandamál eða spurningar eru í info@leiklist.is eða 551-6974.

Öfugu megin upp í á Hólmavík

Leikfélag Hólmavíkur heldur uppteknum hætti að setja árlega upp leiksýningu og þetta árið er það farsinn Öfugu megin uppí eftir Derek Benfield sem varð fyrir valinu. Skúli Gautason er leikstjóri, fimm leikarar taka þátt í verkefninu og fjöldi fólks leggur sitt af mörkum. Í leikritinu segir frá Fríðu sem tekur að sér að gæta sveitahótels […]