Flæktur í Netinu á Króknum

Nú standa yfir sýningar hjá Leikfélagi Sauðárkróks á farsanum Flæktur í netinu  eftir Ray Cooney í þýðingu Jóns St. Kristjánssonar. Leikstjóri er Valgeir Skagfjörð. Flæktur í Netinu (Með táning í tölvunni) er sjálfstætt framhald leikritsins Með vífið í lúkunum þar sem leigubílstjórinn John Smith barðist við að lifa tvöföldu lífi með tveimur eiginkonum, Mary og Barböru. […]

39 þrep í Þjóðleikhúsið

Sýning Leikfélags Hólmavíkur 39 þrep var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins af dómnefnd Þjóðleikhússins. Formaður dómnefndar, Vala Fannell tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði  aðalfundar Bandalags íslenskra leikfélaga sem haldinn var í Vatnsholti 3. maí. Í umsögn dómnefndar segir: Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í þrítugasta og þriðja sinn. Að þessu sinni sóttu […]

Leikhúspáskar í Kómedíuleikhúsinu

Kómedíuleikhúsið í Haukadal Dýrafirði, dalnum þar sem engin býr, tekur að vanda þátt í páskahátiðinni fyrir vestan. Á fjölunum verða tvær leiksýningar úr smiðju leikhússins. Fjölskylduleikritið ástsæla og alvestfirska Dimmalimm eftir Bílddælinginn Mugg hefur notið gífurlegra vinsælda frá því það var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2019. Dimmalimm verður sýnt á Skírdag fimmtudaginn 17. apríl kl.14.00 […]

Aðalfundur BÍL 2025 – Dagskrá og skráning

Boðað er til aðalfundar Bandalags íslenskra leikfélaga 2025 að Hótel Vatnsholti í Árnessýslu, helgina 2.-4. maí 2025. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Aðalfundurinn verður settur kl. 9.00 laugardag 3. maí. Tilkynna þarf fulltrúa aðildarfélaga á aðalfundi með því að senda inn kjörbréf á Leiklistarvefnum. Skrá þarf inn á vefinn á aðgangi aðildarfélags. Hafið samband við […]

Stöndum saman á Eyrarbakka

Leikfélag Eyrarbakka frumsýnir Stöndum saman, leikverk eftir Huldu Ólafsdóttur fim. 10. apríl á veitingastaðnum Rauða Húsinu á Eyrabakka. Hvað gerist þegar daglegt líf ungs pars fer að flækjast? Þegar barneignir, nám, vinnuálag, tengdaforeldrar, íbúðarkaup og samskiptaörðugleikar hrannast upp – og enginn veit nákvæmlega hvernig á að halda utan um allt? Stöndum saman, nýjasta sýning Leikfélags […]

Ærsladraugurinn á Hofsósi

Leikfélag Hofsóss frumsýndi gamanleikinn Ærsladrauginn eftir Noel Coward í Höfðaborg á Hofsósi laugardaginn 29. mars. Leikstjóri er Börkur Gunnarsson. Verkið gerist á yfirstéttarheimili bresks rithöfundar sem ætlar að afla sér vitneskju um starfsemi miðla og býður í þeim tilgangi einum slíkum í heimsókn. Skemmst er frá því að segja að ýmislegt fer á annan veg […]

Ferðin á heimsenda hjá Leikfélagi Blönduóss

Leikfélagið Blönduóss hefur unnið markvisst að endurreisn félagins undanfarin ár og má segja að félagið sé að komast á frábært skrið núna. Leikfélagið setur nú á svið barnasýninguna Ferðina á Heimsenda eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur. Stór og flottur leikhópur á öllum aldri tekur þátt í sýningunni og er það hinn reyndi leikstjóri, Sigurður Líndal sem […]

Alþjóðlegi leikhúsdagurinn 2025

Bandalag íslenskra leikfélaga óskar leiklistarunnendum gleðilegs alþjóðaleikhúsdags með þessum svipmyndum frá aðildarlöndum NEATA, Norður-Evrópsku áhugaleikhússamtökunum.  

Hárið á Hornafirði

Leikfélag Hornafjarðar, í samstarfi við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu, frumsýnir söngleikinn Hárið, næstkomandi laugardag, 29. mars. Leikstjóri sýningarinnar er Svandís Dóra Einarsdóttir, hreyfihönnuður er Sigga Soffía Níelsdóttir, tónlistarstjóri er Hörður Alexander Eggertsson, kórstjóri er Hrafnkell Karlsson, ljósahönnuður er Þorsteinn Sigurbergsson og búningahönnuður er Ágústa Margrét Arnardóttir. Að sýningunni koma 16 leikarar, sjö manna kór, fjögurra manna […]

Heillandi og hugljúf hugleiðing um tímann

Júlíus Júlíusson fjallar um sýningu leikfélags Dalvíkur á Fram og aftur Leikfélag Dalvíkurbyggðar fær hrós í hástert fyrir metnaðarfulla og vandaða uppfærslu á verkinu Fram og aftur eftir bandaríska leikskáldið Sean Grennan. Leikritið, sem nú er sýnt í fyrsta sinn á Íslandi í íslenskri þýðingu og leikstjórn Dominique Gyðu Sigrúnardóttur, er bæði heillandi og hugljúf […]

Bjargráð Leikfélags Fjallabyggðar

Leikfélag Fjallabyggðar frumsýndi leikverkið Bjargráð eftir Guðmund Ólafsson 14. mars síðastliðinn. Verkið  er gamanleikur með söngvum og er höfundurinn Guðmundur Ólafsson, jafnframt leikstjóri. Leikurinn gerist í litlu bæjarfélagi þar sem allt er í kaldakoli og allt útlit fyrir að það fari á hausinn. Fjárhagurinn í tómu tjóni og  íbúar ekki ánægðir með bæjarstjórnina. Hin frábæra […]

Leikfélag Dalvíkur frumsýnir Fram og aftur

Leikfélag Dalvíkur frumsýndi leikritið Fram og aftur eftir Sean Grennan í íslenskri þýðingu og leikstjórn Dominique Sigrúnardóttur, föstudaginn 21 mars. Í staðfærðri þýðingu verksins  fjallar það um ungan mann sem vinnur á bar á Dalvík árið 1986. Eitt kvöldið fær hann óvænta heimsókn frá eldri manni sem býður honum peninga upphæð sem hann á erfitt […]

Góðverkin kalla hjá Hugleik

Hugleikur frumsýnir Góðverkin kalla laugardaginn 15. mars í Leikhúsinu að Funalind 2 í Kópavogi. Í litlum bæ út á landsbyggðinni, þar sem metnaður, góðmennska og samstaða einkenna fólkið, fer fram viðburður sem þú vilt ekki missa af! Hvenær verður maður of góður? Skipta gæði meira máli en magn? Hversu mikið af tækjum þarf eitt lítið […]

Glanni glæpur í Frumleikhúsinu

Leikfélag Keflavíkur frumsýnir Glanna glæp í Latabæ sunundaginn 9. mars í Fumleikhúsinu í Reykjanesbæ. Leikgerðin er eftir þá Magnús Scheving og Ssigurð Sigurjónsson með tónlist Mana Svavarssonar og söngtextum eftir Karl Ágúst Úlfsson. Leikstjóri er Brynja Ýr Júlíusdóttir. Íþróttaálfurinn hefur kennt öllum bæjarbúum hvað það er mikilvægt að borða íþróttanammi og hreyfa sig reglulega, því […]

Hans klaufi hjá Leikfélagi Stafholtstungna

Nýstofnað Leikfélag Stafholtstungna frumsýnir fjölskylduleikritið Hans klaufi eftir leikhópinn Lottu þann 9. mars næstkomandi. Sýnt er í Þinghamri, Varmalandi. Leikstjóri er Gunnar Gunnsteinsson.   Frumsýning er sunnudaginn 9. mars kl. 14.00. Sýningar eru annars sem hér segir: Sun. 16. mars kl. 17.00 Sun. 23. mars kl. 17.00 Lau. 29 mars kl. 14.00 Sun. 30. mars […]

Leikfélag Ölfuss vaknar

Leikfélag Ölfuss rís nú úr dvala og boðar til opins fundar til ad kynna starfsemi sína. Félagið hefur á síðustu misserum verið ad setja upp glænýja aðstöðu og nú er komið ad því að hefja störf í Leikhúsinu ađ Selvogsbraut 4. Öllum sem hafa áhuga á því að starfa med félaginu er hér með boðið […]

,,Land míns föður“ í Freyvangsleikhúsinu-umfjöllun

Á síðasta degi febrúar, eða þann 28. frumsýndi, Freyvangsleikhúsið söngleikinn, Land míns föður, eftir Kjartan Ragnarsson við fallega sveiflutónlist eftir, Atla Heimi Sveinsson, og var ég undirritaður þeirrar ánægju aðnjótandi að vera á staðnum. Í verkinu er fjallað um hernámsárin á Íslandi, en sá tími var afar örlagaríkur í lífi þjóðarinnar og hafði áhrif og […]

Kokteill Halaleikhópsins

Halaleikhópurinn sýnir um helgina leiklesturssýninguna Kokteil eftir Guðjón Sigvaldason sem einnig leikstýrir. Sex sprækir Halar leika / leiklesa sumir eru splunkunýir á sviðinu aðrir reynslunni ríkari. Leikstjórinn dró fram 3 eldri stuttverk eftir sjálfan sig, sem flutt hafa verið áður, en voru skrifuð fyrir 6 til 9 ára leikara, en höfundi langaði að prófa að […]

Sex í sveit í Árnesi

Leikdeild UMFG leggur þessa dagana lokahönd á undirbúning fyrir sýningar á hinu geysivinsæla leikverki Sex í sveit. Leikstjórn er í höndum  Bjarkar Jakobsdóttur. Frumsýnt verður í Árnesi föstudagskvöldið 28. febrúar kl. 20:00.  Verkið sem er eftir Marc Camoletti í íslenskri þýðingu og staðfæringu Gísla Rúnars Jónssonar, er bráðskemmtilegur farsi sem gerist í íslenskum sumarbústað þar sem óvæntar uppákomur, […]

Land míns föður í Freyvangi

Freyvangsleikhúsið frumsýnir Land míns föður föstudaginn 28. febrúar. Verkið er leikrit með söngvum um stríðsárin í Reykjavík, hernámið og það sem því fylgdi. Kjartan Ragnarsson skifaði verkið sem er með tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson. Hvaða áhrif hafði hernámið á íslendinga, einstaklinga og þjóðlífið í heild? Athyglin beinist að unga parinu Báru og Sæla og […]

Sex í sveit á Húsavík

Leikfélag Húsavíkur frumsýnir Sex í sveit í Samkomuhúsinu lau. 1 .mars næstkomandi. Verkið Sex í sveit eftir Marc Camoletti er hefðbundinn gamanleikur með alls konar misskilningi, flækjum, lygum, framhjáhaldi og almennu fjöri. Valgeir Skagfjörð leikstýrir hjá LH að þessu sinni.  Sex í sveit fjallar um hjónin Benna og Þórunni sem fara í bústaðinn sinn í […]

Epli og eikur í Hörgárdal

Leikfélag Hörgdæla á Melum æfir nú söngleikinn Epli og eikur sem frumsýndur verður þann 27. febrúar. Söngleikurinn er skrifaður af Þórunni Guðmundsdóttur og var það fyrst sýnt af leikfélaginu Hugleik í Reykjavík árið 2007. Söngleikurinn Epli og Eikur fjallar um óhefðbundin ástarsambönd og glæpsamleg áhugamál nokkurra einstaklinga sem fléttast saman í sprenghlægilegan og flókinn eltingaleik. […]

Leiklistarskóli BÍL 2025

[et_pb_section fb_built=“1″ admin_label=“section“ _builder_version=“3.22″][et_pb_row admin_label=“row“ _builder_version=“3.25″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“][et_pb_column type=“4_4″ _builder_version=“3.25″ custom_padding=“|||“ custom_padding__hover=“|||“][et_pb_text admin_label=“Text“ _builder_version=“3.27.4″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“] STARFSTÍMI SKÓLANS ER 21. – 29. JÚNÍ 2025 AÐ REYKJASKÓLA Í HRÚTAFIRÐI. — Smella hér til að sækja um!* —   (*Opnað fyrir skráningu 1. mars kl. 17.30) 3. apríl fá umsækjendur svar við umsókn. ATH! Staðfestingargjald […]

Rokksöngleikurinn Ólafía hjá Eflingu

Leikdeild Eflingar frumsýnir laugardaginn 15. febrúar rokksöngleikinn Ólafíu eftir Hörð Þór Benónýsson með tónlist eftir Jaan Alavere. Leikstjóri er Hildur Kristín Thorstensen og tónlistarstjórn er í höndum Mariku Alavere. Söngleikurinn fjallar um líf ungs fólks í dag og áreiti sem það verður fyrir, vímuefni, útlitsdýrkun, samfélagsmiðla og tvískinnungshátt fullorðna fólksins. Hressandi tónlist og fjör í […]

Námskeið í sýningarstjórnun og tækni leikhússins

Helgina 15. og 16. mars stendur Þjóðleikhúsið fyrir námskeiðum í sýningarstjórnun annars vegar og tækni leikhússins hins vegar. Námskeiðin verða kennd af sýningarstjórum og tæknimönnum hússins og verða kennd í Þjóðleikhúsinu. Skráning er á vef Þjóðleikhússins.  Nánar um námskeiðin: Sýningastjóranámskeið Laugardaginn 15. Mars kl. 09:30 – 15:00 og sunnudaginn 16. Mars kl. 09:30 – 15:00 […]

Átta konur hjá Leikfélagi Selfoss

Leikfélag Selfoss vinnur nú hörðum höndum að 88. uppsetningu félagsins. Æfingar hófust í desember sl. og stefnt er á frumsýningu þann 14.febrúar. Rakel Ýr Stefánsdóttir leikstýrir verkinu sem heitir Átta konur og er „glæpsamlegur gamanleikur“ eftir franska leikskáldið Robert Thomas. Þýðing og aðlögun var í höndum Sævars Sigurgeirssonar. Við kynnumst glæsilegri eiginkonu, tveimur ungum og […]

Frumsýning á Bót og betrun

Leikfélag Kópavogs frumsýnir fimmhurðafarsann Bót og betrun laugardaginn 1. febrúar kl. í Leikhúsinu að Funalind. Bót og betrun segir frá bótasvindlaranum Eric Swan sem grípur til þess ráðs að svíkja bætur  út úr félagslega kerfinu,  þegar hann missir vinnuna. Svindlið fer hins vegar úr böndunum og Eric kemst að því að það er stundum einfaldara […]

Blóðug myrkraverk í Tjarnarbíó

Kómedíuleikhúsið er mætt til borgarinnar með blóðuga en sögulega leikstykkið Ariasman eftir Tapio Koivukari. Árið 2011 kom út samnefnd bók eftir Tapio sem vakti mikla athygli. Enda er hér á ferð sönn saga um Baskamorðin hrottalegu á Vestfjörðum árið 1615. Leikritið Ariasman verður sýnt í Tjarnarbíó í Reykjavík og verða aðeins þrjár sýningar í boði. […]

Leiklistarskóli BÍL 2025 – umsókn

[box] Skólanefnd hefur yfirfarið umsóknir í skólann. Fullt er nú á námskeiðin Leiklist II, Leikritun II og Trúðanámskeið. Enn eru laus pláss fyrir Höfunda í heimsókn. Opnað verður hér fyrir umsóknir kl. 17.30 þann 1. mars. Umsókn telst gild frá og með þeim tíma sem staðfestingargjald hefur verið greitt og umsókn hefur borist. Þann 3. […]

NEATA Youth Festival í Litháen 2025

NEATA, Norður-Evrópsku áhugaleikhússamtökin bjóða íslenskum leikhóp ungmenna á leiklistarhátíð í Kreting í Litháen 8.-12. maí 2025. Hátíðin er ætluð leikhópum ungmenna á aldrinum 14.-17. ára. Leiksýningar skulu vera á bilinu 30-60 mínútna langar en að öðru leyti eru ekki gerðar kröfur um form eða innihald. Nánar má fræðast um hátíðina og skipulag hennar hér. Umsóknareyðublað […]

Lápur, Skrápur og jólaskapið á Ísafirði

Litli leikklúbburinn frumsýndi jólaleikritið Lápur, Skrápur og jólaskapið eftir Snæbjörn Ragnarsson, í leikstjórn Tinnu Ólafsdóttur um liðna helgi en þetta er fyrsta verkið sem Tinna leikstýrir. Uppselt var á báðar sýningarnar um helgina og fóru leikhúsgestir uppfullir af jólaskapi af sýningunni. Miðasala er í fullum gangi á sýningarnar á næstu helgi og hægt að kaupa […]

Svör flokkanna X2024

Mörg félög hafa sent eftirfarandi fyrirspurn og spurningar á stjórnmálaflokkana: Starfsemi áhugaleikfélaga á Íslandi á sér langa sögu sem sums staðar spannar yfir 100 ár. Víða um land er áhugaleikfélagið á staðnum eini vettvangurinn þar sem landsmenn geta notið leiklistar í heimabyggð, og allsstaðar eru þau eini staðurinn þar sem almenningur getur tekið þátt í […]