Metaðsókn á Með táninginn í tölvunni og leikferð framundan
Leikfélag Hólmavíkur leggur upp í leikferð um Vestfirði í næstu viku, með uppsetningu á hinum sprellfjöruga gamanleik „Með táning í tölvunni“ eftir Ray Cooney. Nú er endanlega búið að ákveða hvar og hvenær sýningarnar verða en þær verða þrjár í ferðinni, á Patreksfirði, á Bolungarvík og í Súðavík. Leikfélagið á 30 ára afmæli á þriðjudaginn og auk þessarar uppfærslu er ætlunin að minnast afmælisins með fjölbreyttum hætti síðar á árinu. Það er Hólmvíkingurinn Arnar S. Jónsson sem leikstýrir og fara sjö leikarar með hlutverk í sýningunni og eru flestir þeirra að stíga sín fyrstu skref með leikfélaginu. Auk þeirra...
Read More


