Prufusöngur fyrir drengi og stúlkur í Hörpu
Íslenska óperan efnir til prufusöngs fimmtudaginn 9. júní fyrir þrjú hlutverk í Töfraflautunni eftir Mozart, sem frumsýnd verður í Hörpu í haust. Um er að ræða hlutverk „drengjanna þriggja“, „Drei Knaben“, sem koma töluvert við sögu í óperunni. Leitað er að ungum drengjum eða stúlkum með góðar bjartar sópranraddir, þó ekki yngri en 10 ára. Æskileg er menntun eða reynsla í söng og eins væri kostur ef viðkomandi hefði einhverja leikreynslu. Umsækjendur eru beðnir um að syngja eitt lag eða aríu að eigin vali. Æskilegt væri ef viðkomandi syngi líka upphaf síðari Finale: „Brátt kynnir ársól komu sína“ („Bald...
Read More


