Leiklistarhátíðin Act alone 2011
Leiklistarhátíðin Act alone verður haldin áttunda árið í röð dagana 12. – 14. ágúst. Hátíðin fer að vanda fram á Ísafirði sem gárungarnir nefna Einleikjabæinn þegar hátíðin fer fram ár hvert. Eru það orð að sönnu því mikið fjör er í bænum Act alone helgina en auk þess hefur Kómedíuleikhúsið sem einmitt er staðsett í bænum verið duglegt við að setja upp einleiki síðasta áratug. Í ár verður Act alone ekki bara á Ísafirði heldur einnig í Arnarfirði, nánar tiltekið á höfuðbóli Vestfjarða, Hrafnseyri. Rétt er að geta þess að aðgangur að öllum sýningum á Act alone er ókeypis...
Read More


