Author: lensherra

Leikhópurinn Maddid sýnir As Soon As They Know Me

Leikhópurinn Maddid sýnir nýtt leikhúsverk, As Soon As They Know Me, á Norðurpólnum dagana 20.-21. ágúst kl. 20:00. Verkið fjallar um hvernig nýtt umhverfi og nýjar aðstæður geta haft áhrif á okkur. Verkið er samið með svokallaðri devising leikhúsaðferð og notast við textabrot, leikspuna, tónlist og video-verk. Maddid hópurinn var stofnaður árið 2007 af Völu Ómarsdóttur og Mari Rettedal-Westlake þegar þær útskrifuðust frá Central School of Speech and Drama í London. Síðan hefur hópurinn stækkað og fjölmargir listamenn bæst við hópinn. Hópurinn leggur áherslu á tilraunir í sviðslistum þar sem mismunandi listgreinar koma saman til þess að móta heildarmyndina....

Read More

Beðið eftir gæsinni á Egilsstöðum

Leikfélagið Frjálst Orð sýnir nýjan einleik eftir Ásgeir Hvítaskáld á Kaffi Egilsstöðum, fimmtudaginn 18.ágúst, klukkan 20. Jón Vigfússon leikur örvæntingarfulla veiðimanninn sem hræðist mest af öllu að vera kallaður einnar gæsar veiðimaður. En gæsin er slungin og hefur áhrif á hugarheim veiðimannsins. Bráðfyndið og kaldhæðið verk. Rödd: Steinunn Friðriksdóttir Frítt inn. Kaffi Egilsstaðir er með frábært tilboð á matseðli fyrir sýningu....

Read More

Umsóknarfrestur að renna út

Stuttverkahátíðin í Þórshöfn í Færeyjum verður haldin 15. október á þessu ári. Færeyjar, Ísland og Noregur taka þátt og er hverju landi úthlutað 75 minútna sýningartíma sem það ráðstafar að vild. Þó mega einstakar sýningar ekki fara yfir 15 mínútur að lengd. Ef eitthvert landanna fyllir ekki tímakvótann sinn, getur annað land nýtt sér hann. Hvert leikfélag getur aðeins farið með tvö leikrit nema kvóti fyllist ekki. Einleikir verða ekki leyfðir. Við minnum á að frestur til að sækja um þátttöku Stuttverkahátíðin í Þórshöfn í Færeyjum, sem haldin verður 15. október nk., er 15. ágúst. Þann 1. september mun...

Read More

Leikfélag Mosfellssveitar sýnir Hársprey

Föstudaginn 5. ágúst síðastliðinn var söngleikurinn Hársprey frumsýndur í Bæjarleikhúsinu hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Að söngleiknum koma 37 ungmenni á aldrinum 13-18 ára sem öll sameina krafta sína í leik, söng, dansi og búningagerð. Söngleikurinn er afrakstur námskeiða sem leikfélagið stóð fyrir í sumar, annars vegar leiklistarnámskeiðs og hins vegar búninganámskeiðs. Listrænir stjórnendur eru Agnes Wild, leikstjóri, Sigrún Harðardóttir, tónlistarstjóri, Elísabet Skagfjörð, danshöfundur og Eva Björg Harðardóttir sem hafði umsjón með búninga- og förðunarnámskeiðinu. Söngleikurinn sem gerist í Baltimore í upphafi 7. áratugarins segir frá Tracy Turnblad, þybbinni unglingsstúlku sem á sér þann draum heitastan að dansa í sjónvarpsþætti Corny...

Read More

Góðir hálsar á Snæfellsnesi

Góðir hálsar er leiksýning eftir Kára Viðarsson þar sem rakin er saga Axlar-Bjarnar. Sýningin er súrrealísk syndaaflausn með karíókíívafi þar sem áhorfendur fá tækifæri til að sjá mannlegu hliðina á manni sem hingað til hefur verið talinn geðsjúkur raðmorðingi. Leiksýningin verður sú fyrsta í nýju leikhúsi sem nú rís í gamalli fiskvinnslu í Rifi á Snæfellsnesi. Leikhúsið ber heitið Frystiklefinn og verður aðstaðan formlega opnuð í nóvember næstkomandi. Sýningin og uppsetning leikhússins er samofið verkefni sem hlaut frumkvöðlastyrk Evrópu unga fólksins á þessu ári. Höfundur: Kári Viðarsson Leikarar: Alexander Roberts, Ingi Hrafn Hilmarsson, Kári Viðarsson og Snædís Ingadóttir Leikstjórar: Kári...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert