Author: lensherra

Svar við bréfi Helgu frumsýnt á Nýja sviðinu

Hin margrómaða ástarsaga Bergsveins Birgissonar verður frumsýnd á Nýja sviði Borgarleikhússins á föstudaginn 27. apríl næstkomandi. Hér er á ferðinni hrífandi saga um þrá og eftirsjá. Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2010 og valin besta skáldsaga ársins að mati bóksala það sama ár. Aðstandendur sýningarinnar eru margir hverjir þeir sömu og sviðsettu Fólkið í Kjallaranum sem hlaut 9 tilnefningar til Grímunnar á síðasta ári, m.a. sem leiksýning ársins og gekk fyrir troðfullu húsi yfir á annað leikár. Höfundur leikgerðar er Ólafur Egill Egilsson og leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir. Í burðarhlutverkum eru þau Ilmur Kristjánsdóttir og Þröstur Leó...

Read More

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 2012

Fundurinn verður settur laugardagsmorguninn 5. maí kl. 9.00 og honum slitið um hádegisbil sunnudaginn 6. maí. Gist verður á Hótel Ísafirði, Silfurtorgi 2, en fundurinn og maturinn verða í Edinborgarhúsinu. Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugasýningu leikársins verður að venju kynnt á hátíðakvöldverðinum. Dagskrá fundarins Föstudagur 4. maí 20.00-21.00 Kvöldverður í Edinborgarhúsinu.Samvera og samhristingur. Laugardagur 5. maí 08.00-09.00 Morgunverður á Hótel Ísafirði fyrir þá sem gista.09:00-12.00 Aðalfundur settur í Edinborgarhúsinu12:00-13.00 Hádegisverður í Edinborgarhúsinu13:00-17.00 Framhald aðalfundar17:00 Fundarhlé20:00 Hátíðarkvöldverður í EdinborgarhúsinuSkemmtidagskrá og samvera Sunnudagur 6. maí08.00 -09.00 Morgunverður á Hótel Ísafirði fyrir þá sem gista09:00-12.00 Framhald aðalfundar og fundarslit12:00 Hádegisverður og heimferð...

Read More

Allra síðasta sýning á Sólarferð

Nú er hver að verða síðastur til að sjá þessa stórskemmtilegu uppfærslu Leikfélags Selfoss á Sólarferð eftir Guðmund Steinsson því nú er komið að allra síðustu sýningu! Hún verður sýnd miðvikudaginn 4. apríl kl. 20 í Litla leikhúsinu á Selfossi. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson. Verkið hefur fengið frábærar viðtökur og hefur verið uppselt á hverja sýninguna á fætur annarri. Leikritið gerist á miðjum áttunda áratugnum og fjallar um ferð nokkurra íslenskra hjóna til Costa del Sol. Þau ætla sannarlega að njóta sólarinnar, enda er hún ástæðan fyrir ferðum hins fölbleika landa til útlanda, sem og frelsisins sem fylgir því...

Read More

Leikfélag Ólafsfjarðar sýnir Sex í sveit

Leikfélag Ólafsfjarðar frumsýnir þann 5. apríl nk. farsann Sex í sveit eftir Marc Camoletti, en Gísli Rúnar Jónsson, þýddi og staðfærði. Leikstjóri er Saga Jónsdóttir og verða sýningar í Tjarnarborg. Sex í sveit er farsi af hröðustu gerð, og áhorfendur þurfa að hafa sig alla við til að fylgjast með flækjunni og innbyrða alla brandarana um leið. Verkið er hefðbundinn framhjáhaldsfarsi þar sem næstum allir hafa eitthvað að fela, og smám saman verða aðferðirnar til að fela það enn pínlegri en það sem upphaflega átti að halda leyndu. Úr verður fyndin flækja sem leysist í raun ekki, lausnin minnir...

Read More

Grjóthaldið kjafti frumsýnt á Dalvík

Miðvikudaginn 4. apríl frumsýnir Leikfélag Dalvíkur gamanleikritið Grjóthaldiði kjafti eftir breska leikskáldið Michael Frayn í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Leikstjóri er Aðalsteinn Bergdal, lýsingu hannaði Pétur Skarphéðinsson og hönnun sviðsmyndar er í höndum Kristjáns Guðmundssonar, Árna Halls Júlíussonar og Aðalsteins Bergdal. Verkið fjallar um hóp gamanleikarasem ásamt leikstjóra og baktjaldafólki eru að æfa breskan svefnherbergisfarsa með tilheyrandi framhjáhaldi og misskilningi. Áhorfendur verða annars vegar vitni að því sem gerist á sviðinu og hins vegar því sem á sér stað baksviðs, en það útsýni býður upp á mun fyndnari farsa en þann sem fram fer á sviðinu sjálfu. Níu leikarar...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert