Author: lensherra

Aukasýning á La Bohème 21. apríl

Vegna mikillar eftirspurnar eftir miðum hefur annarri aukasýningu verið bætt við á La Bohème, laugardagskvöldið 21. apríl kl. 20. Mun þetta verða allra síðasta sýningin á þessari vinsælu og fallegu sýningu sem hefur slegið í gegn hjá áhorfendum, en rúmlega 9.000 miðar hafa þegar selst á sýninguna og þarf að leita aftur á síðustu öld að viðlíka aðsókn í Íslensku óperunni, að undanskilinni Töfraflautunni síðastliðið haust sem sló aðsóknarmet langt aftur í tímann. Í hlutverkum Mimi og Rodolfo á aukasýningunni verða Hulda Björk Garðarsdóttir og Gissur Páll Gissurarson. Sýning hefur hlotið afar góðar móttökur gagnrýnenda og gesta, og hlaut hún m.a. fjórar...

Read More

Allra síðasta sýning á Enginn með Steindóri

Sýning Leikfélags Hofsóss á Enginn með Steindóri eftir Nínu Björk Jónsdóttur í leikstjórn Ingridar Jónsdóttur hefur fengið mjög góðar viðtökur leikhússgesta. Því hefur verið ákveðið að bæta við einni aukasýningu að kvöldi síðasta vetrardags, miðvikudaginn 18. apríl kl. 21:00. Miðaverð er kr. 2500 fyrir fullorðna, kr. 2000 fyrir ellilífeyrisþega og kr. 1000 fyrir börn 6-14 ára. Miðapantanir eru í síma 893-0220. Sjá má umsagnir um verkið á Facebooksíðu félagsins undir Leikfélag Hofsóss – Enginn með Steindóri....

Read More

Tveir tvöfaldir á Króknum

Leikfélag Sauðárkróks æfir nú leikritið Tveir tvöfaldir eftir Ray Cooney, í þýðingu Árna Ibsen. Leikstjóri er Ingdrid Jónsdóttir. Leikritið verður frumsýnt á opnunardegi Sæluvikunnar, þann 29. apríl næstkomandi í félagsheimilinu Bifröst. Leikfélag Sauðárkróks sýndi verk efir Ray Cooney fyrst árið 1978, leikritið Eltu mig félagi, sem var fyrsta sviðsetning á leikriti eftir Ray Cooney á Íslandi. Leikarahópurinn samanstendur af nokkrum gömlum kempum í bland við góða nýliða og má til gamans geta að tveir af leikurunum í hópnum hafa áður leikið í þeim uppsetningum eftir Ray Cooney sem félagið setti upp á seinasta áratug, Með vífið í lúkunum, 2006...

Read More

Skráningar í Leiklistarskólann 2012

Sunnudagurinn 15. apríl er síðasti skráningardagur á námskeiðin í Leiklistarskóla Bandalags ísl. leikfélaga 2012. Þó er skráningartíminn framlengdur á Trúðanámskeiðið þar sem leit stendur yfir að nýjum kennara í stað Ágústu Skúladóttur sem var því miður að hætta við. Tilkynning um nýjan kennara og nýjan síðasta skráningardag á námskeiðið verður sett inn þegar allt er klárt, vonandi fljótlega eftir helgina. Ath. að grunnnámskeið fyrir leikara, Leiklist I er fullbókað og 4 á biðlista. Hér eru upplýsingar um námskeiðin 2012  ...

Read More

Herra Pottur og ungfrú Lok í Kaldalóni

Óperarctic félagið setti upp barna- og fjölskyldusýninguna Herra Pottur og ungfrú Lok í samvinnu við Þjóðleikhúsið, í Kúlunni á Listahátið í Reykjavík vorið 2010. Sýningin fékk afar góðar viðtökur og hlaut lofsamlega dóma þar sem fyrirsögn gagnrýnandans var „Frábær kennslustund í menningu“. Sýningin, í leikstjórn Ágústu Skúladóttur, hlaut á síðasta ári tilnefningu til Grímuverðlauna sem Barnasýning ársins. Helgina 14. – 15. apríl mun Óperarctic félagið standa fyrir fjórum sýningum á Herra Potti og ungfrú Lok, í Kaldalóni í Hörpu, fyrir leikskólabörn sérstaklega. Sýningartímar eru kl. 11:30 og 13:00. Aðeins þessa einu helgi getum við boðið leikskólabörnum, foreldrum þeirra og...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert