Hvílíkt snilldarverk er maðurinn á Akureyri
Á morgun, fimmtudaginn 10. maí kl. 20:00, mun Sigurður Skúlason sýna einleikinn Hvílíkt snilldarverk er maðurinn, í Samkomuhúsinu á Akureyri. Verkið er unnið upp úr verkum Shakespears og hefur fengið afburða góða gagnrýni. Verkið hefur verið sýnt í Þjóðleikhúsinu í vetur og er einnig nýkomið úr leikferð um Austurland þar sem það var sýnt 6 sinnum fyrir fullu húsi. Aðeins er um þessa einu sýningu að ræða. Sýningin er einleikur byggður á brotum úr leikritum og sonnettum Shakespeares. Fjallað er um manninn og vegferð hans, og samlíkingu lífs og leikhúss. Áhorfendur ferðast inn í völundarhús mannssálarinnar þar sem á...
Read More


