Author: lensherra

Vinnslan á Norðurpólnum 19. maí

Laugardagskvöldið 19. maí næstkomandi ætla Maddid og Fimbulvetur að hleypa af stokkunum Vinnslunni í húsnæði Norðurpólsins, í samvinnu við Alheiminn. Húsið verður opið fyrir áhorfendur frá kl. 19:30 þar sem áhorfendur munu hafa tækifæri til þess að njóta verk í vinnslu frá um 30 listamönnum og hópum úr mismunandi listgreinum. Vinnslan er ævintýri fyrir öll skynfæri. Vinnslan gengur út á að listafólk geti látið reyna á verk/hugmynd í Vinnslu fyrir framan áhorfendur. Stefnan er að afmá landamæri milli listgreina og að skapa samræður milli fremjenda og njótenda lista um sköpun. Vinnslan fer fram á Norðurpólnum Sefgörðum 3, Seltjarnarnarnesi. Stofnendur...

Read More

Gamli maðurinn og hafið frumsýnt í Kúlunni

Sunnudaginn 20. maí frumsýna Brúðuheimar í samstarfi við Þjóðleikhúsið, Gamla manninn og hafið, einstaklega fallega nýja sýningu eftir brúðumeistarann Bernd Ogrodnik, byggð á meistarverki Hemingways. Bernd Ogrodnik heillaði Listahátíðargesti árið 2006 með frumsýningu hins byltingarkennda leikrits Metamorphosis sem síðan hefur ferðast um heiminn við frábærar undirtektir. Hann færir nú sígilda sögu Hemingway á svið í fyrsta skipti í íslensku leikhúsi með  brúðuleiksýningu fyrir fullorðna áhorfendur. Sýningin er liður í Listahátíð í Reykjavík. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson. Gamall maður, lítill bátur, risastór fiskur og hið óendanlega haf.  Sígild saga Ernest Hemingway um epíska baráttu er hér sögð gegnum ljóðrænan miðil...

Read More

Fastur á Norðurpólnum

Fastur, frumsamin leiksýning án orða, verður frumsýnd í Norðurpólnum kl. 20.00 næstkomandi fimmtudag, 17. Maí. Leikari og höfundur verksins er Benedikt Karl Gröndal. Honum til leikstjórnar og aðstoðar við höfundaverkið er Árni Kristjánsson. Í verkinu er kröftug og kynngimögnuð hljóðmynd sem er í höndum plötusnúðsins Einars Helgasonar. Verkið fjallar um mann sem rankar við sér í lokuðum kassa í yfirgefinni verksmiðju. Hann kemst úr kassanum og virðist skilja að hann þurfi að komast út úr verksmiðjunni, en af hverju er hann aðeins í einum skó? Fastur er fyndinn „physical“ einleikur sem minnir á köflum á svarthvítar bíómyndir Chaplin og...

Read More

Leikfélag Seyðisfjarðar frumsýnir Pelíkanann

Föstudaginn 11. maí frumsýnir Leikfélag Seyðisfjarðar leikritið Pelíkaninn eftir Seyðfirðinginn Ágúst Torfa Magnússon sem jafnframt er leikstjóri. Pelíkaninn er þriðja leikritið sem Ágúst skrifar fyrir Leikfélag Seyðisfjarðar, áður hefur skrifað verkin Kallarðu þetta leikrit? og Þetta er bara prinsippmál! sem hann skrifaði ásamt Snorra Emilssyni. Sýnt er í Félagsheimilinu Herðubreið, Seyðisfirði og hefjast sýningar kl. 20.30. Það er 6. áratugur síðustu aldar og tónlistarmenn eins og t.d. Elvis Presley og Buddy Holly voru uppá sitt besta. Nú gefst ykkur einstakt tækifæri til að reka inn nefið á Pelikananum, sem er háklassa veitinga- og skemmtistaður, og fylgjast þar með örlögum...

Read More

Bræður – fjölskyldusaga á Listahátíð í júní

Framleiðsla og æfingar á sýningunni Bræður – fjölskyldusaga eru í fullum gangi í Borgarleikhúsinu um þessar mundir. Verkið er samstarfsverkefni Borgarleikhússins, Vesturports, borgarleikhússins í Malmö og Teater Får302 í Kaupmannahöfn. Íslendingum gefst kostur á að fylgja þessu metnaðarfulla verkefni úr hlaði í vor því ferðalag norrænu uppfærslu verksins hefst á tveimur sýningum á Listahátíð þann 1. og 2. júní, í flutningi danskra, sænskra og íslenskra leikara. Sýningin verður svo frumsýnd á íslensku á næsta leikári í Borgarleikhúsinu með íslensku leikaraliði. Höfundar verksins eru hinn virti bandaríski handritahöfundur Richard Lagravenese og Gísli Örn Garðarsson sem jafnframt leikstýrir verkinu. Richard Lagravenese...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert