Author: lensherra

100 ár frá fæðingu Thorbjørns Egner

Í tilefni af því að í dag, 12. desember, eru 100 ár liðin frá fæðingu norska barnabóka og leikritahöfundarins Thorbjørns Egner, stendur Landsbókasafnið – Háskólasafn, í samvinnu við sendiráð Noregs, Nasjonalbibliteket í Osló, Þjóðleikhúsið og Leikminjasafnið, fyrir sýningu tengdri Egner en hann, auk þess að semja verkin og tónlistina við þau, hannaði hann gjarnan búninga, leikmyndir og kynningarefni fyrir verkin sín. Sýningin er í Þjóðarbókhlöðunni og hefst kl. 15.30. Á opnunni munu Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður, Jón Viðar Jónsson leiklistarfræðingur og Dag Wernø Holter sendiherra Noregs flytja ávarp. Thorbjørn Egner fæddist í einu af eldri hverfum Oslóar 12. desember...

Read More

Ferðalagið hefst á morgun!

Mary Poppins hópurinn, listrænir stjórnendur, leikarar, dansarar, söngvarar, tónlistar- og tæknimenn koma saman á fyrstu samæfingu á morgun sem markar upphafið af spennandi og krefjandi æfingaferli. Þá verður leikmynd kynnt, verkið leiklesið í heild sinni í fyrsta sinn og að endingu mun danshöfundur sýningarinnar Lee Proud drífa hópinn út á gólf á fyrstu dansæfinguna. Hátt í 50 manns eru á sviði í Mary Poppins og mikill fjöldi á bak við tjöldin enda er sýningin einstaklega viðamikil og flókin tæknilega. Bergur Þór Ingólfsson leiktýrir verkinu en tónlistarstjóri er Agnar Már Magnússon en hann leiðir 10 manna hljómsveit sem spilar í...

Read More

Jólahlaðborð Hugleiks

Hugleikur býður til jóladagskrár undir heitinu Jólahlaðborð fimmtudaginn 13. desember kl. 20.00 og sunnudaginn 16. desember kl. 17.00. Eins og nafnið gefur til kynna verður fjölbreytt efni á boðstólum, leiknir þættir og tónlist í bland. Á krepputímum er í tísku að endurnýta og betrumbæta. Sýnt er í húsnæði Hugleiks að Eyjarslóð 9. Hugleikur stendur sig í því með því að setja upp tvo endurunna þætti: Meira fyrir börn eftir Þórunni Guðmundsdóttur og Þegar Grýla stal jólunum eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur. Svo er heimsfrumsýning á þættinum Korter í sex eftir Þórarin Stefánsson. Nokkur ný jólalög eftir valinkunna hugleikara munu líka...

Read More

Faust sýnt á BAM hátíðinni í New York

Sýningar á Faust uppsetningu Vesturports og Borgarleikhússins á BAM hátíðinni í New York hefjast nk. miðvikudag 12. desember. BAM er stærsta og þekktasta leiklistarhátíð Bandaríkjanna sem haldin er ár hvert í New York. Alls eru fyrirhugaðar 6 sýningar á Faust á hátíðinni, dagana 12.–16. desember. Hópur listamanna og tæknifólks frá Vesturporti og Borgarleikhúsinu hélt utan á laugardag og vinnur nú hörðum höndum að uppsetningu sýningarinnar við BAM leikhúsið í Brooklyn. Þetta er í þriðja sinn sem Vesturport er boðið á hátíðina en Woyzeck var þar sýnt í október 2008 og Hamskiptin í desember 2010. Faust var jólasýning Borgarleikhússins 2009...

Read More

Hyldýpi í Gamla bíói

Föstudaginn 14. desember kl. 20 frumsýnir Ragnheiður Harpa Leifsdóttir leikverkið Hyldýpi  í Gamla bíói, Ingólfstræti 2a. Hyldýpi er leikverk sem fjallar um myrkrið, geimryk, ókönnuð djúp og kafbáta. Verkið er dagskrá um dýpsta dýpi sjávar og endaleysu himingeimsins, sorgina og sköpunarkraftinn. Sjónrænt ljóð hins óvænta og undarlega. Flytjandi, leikstjóri og höfundur er Ragnheiður Harpa Leifsdóttir. Verkið hefur ferðast á leiklistarhátíðir til Danmerku og Finnlands. Sýningar verða:Föstudaginn 14. desember Laugardaginn 15. desember
Mánudaginn 17. desember Þriðjudaginn 18. desember Ragnheiður Harpa útskrifaðist úr Listaháskólanum 2011. Hún heillast af því sem hún skilur ekki til fullnustu, og sér dulúð í spurningarmerkjunum. Ragnheiður beitir vísindalegum...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert