Author: lensherra

Karíus og Baktus í Kúlunni

Þjóðleikhúsið heldur upp á 100 ára afmæli Thorbjörns Egners með því að setja á svið tvö af hans vinsælustu leikritum, Dýrin í Hálsaskógi á Stóra sviðinu og Karíus og Baktus í Kúlunni.  Frumsýning á Karíusi og Baktusi verður í Kúlunni 29. desember. Leikstjóri er Selma Björnsdóttir og það eru Ágústa Eva Erlendsdóttir og Friðrik Friðriksson sem fara með hlutverk litlu skrattakollanna. Karíus og Baktus eru pínulitlir tannálfar sem hafa komið sér fyrir í munninum á drengnum Jens. Þar lifa þeir sældarlífi, enda er Jens helst fyrir að borða allskyns sætindi og hann notar tannburstann lítið. En þessir tveir hrappar...

Read More

Lokað um hátíðirnar

Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga Kleppsmýrarvegi 8 verður lokuð frá kl. 13.00 föstudaginn 22. desember og til miðvikudagsins 2. janúar. Bandalag íslenskra leikfélaga óskar öllum gleðilegra jóla og þakkar samskiptin á árinu sem er að...

Read More

Jólafrumsýning Þjóðleikhússins – Macbeth

Nú líður að jólafrumsýningu Þjóðleikhússins á Macbeth eftir Shakespeare í leikstjórn hins eftirsótta leikstjóra Benedicts Andrews, og bíða margir með eftirvæntingu eftir að fá að sjá sýninguna. Eitt magnaðasta leikrit heimsbókmenntanna, Macbeth, er jólasýning Þjóðleikhússins. Rétt eins og undangengin 62 ár er jólafrumsýningin á annan dag jóla og markar einn af hápunktum menningarlífsins. Sýningin á Macbeth verður engin undantekning og er um sannkallaða hátíðarsýningu er að ræða. Frumsýningin verður 26. desember. Því er spáð fyrir herforingjanum Macbeth að hann eigi eftir að verða konungur Skotlands. Hvattur áfram af eiginkonu sinni myrðir hann konunginn og sest sjálfur í hásætið. En ódæðið...

Read More

Mýs og menn á Stóra sviðinu

Jólasýning Borgarleikhússins, Mýs og menn, verður frumsýnd á Stóra sviðinu laugardaginn 29. desember næstkomandi. Hér er sögð saga farandverkamannanna George og Lennie sem flakka saman á milli vinnustaða, vinna til að lifa af og þrauka en deila saman fjarlægum draumi um betra líf. En suma drauma þarf að gjalda dýru verði. Steinbeck skrifaði sjálfur leikritið, en Jóhann Sigurðsson þýddi. Jón Páll Eyjólfsson leikstýrir. Þetta meistaravek John Steinbeck frá krepputímum þriðja áratugarins er löngu orðið sígilt. Hann varpar fram spurningum um hvaða mat við leggjum á manneskjuna og hvert gildi hennar er þegar hún virðist ekki vera neinum til gagns....

Read More

Leikfélag Selfoss æfir Þrek og tár

Leikfélag Selfoss hefur hafið æfingar á leikritinu Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Lilju Nóttar Þórarinsdóttur.  Þrek og tár var fyrst frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1995 og er hvort tveggja fjölskyldusaga og þroskasaga ungs manns á 7. áratug síðustu aldar.  Leikritið innheldur mikið af söngvum sem margir hverjir eru löngu orðnir landskunnir. Alls taka 18 leikarar þátt í sýningunni og eru þeir á aldrinum 13 – 66 ára. Stefnt er að frumsýningu í síðari hluta janúar....

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert