Menn eru ekki hættir að gefa út bækur

leikr.tjaning

Í ljósi nýjustu frétta mætti ætla að bókaútgáfa væri hverfandi fyrirbæri hér á landi. En þó er alltaf einhver sem stekkur til í ævintýrið og nú hefur Kómedíuleikhúsið sett sig í útgáfustellingar. Tilefnið er kennslubókin Leikræn tjáning eftir Elfar Loga Hannesson, leikara. Til að ævintýrið gangi hefur útgefandi hafið sérstaka söfnun fyrir útgáfunni á Karolina […]

Brúðkaup eftir Guðmund Ólafsson

brudkaup2

Æfingar eru hafnar að nýju hjá Leikfélagi Fjallabyggðar á verkinu Brúðkaup sem er samið af Guðmundi Ólafssyni sem jafnframt leikstýrir verkinu. Um er að ræða fyrsta verk Leikfélags Fjallabyggðar þar sem Leikfélag Ólafsfjarðar og Leikfélag Siglufjarðar sameinuðust formlega í Leikfélag Fjallabyggðar 12. júlí 2013. Áður unnu félögin saman af mikilli prýði að uppsetningu á verkinu […]

Skálmöld snýr aftur í Borgarleikhúsið

skalmold

Þungarokkararnir í Skálmöld ætla aftur að henda leikmyndunum út af Stóra sviði Borgarleikhússins eins og í fyrra en þeir sýndu sex sýningar fyrir troðfullu húsi. Eins og þá rífa þeir göt á búninga leikarana og hækka í Marshall mögnurunum. Skálmöld og listafólk Borgarleikhússins taka höndum saman og magna upp norrænan seið með vænum skammti af […]

Námskeið í leikhúslýsingu

ljosanamskeid

Benedikt Axelsson ljósameistari mun halda námskeið í leikhúslýsingu helgina 25. og 26. okt. nk. kl. 10.00 – 15 eða 16 báða dagana. Námskeiðið hentar öllum sem vilja kynna sér betur hvernig ljós, lýsing og önnur leikhústækni virkar. Leikstjórar, tæknimenn, stjórnir leikfélaga og leikarinn sjálfur geta lært heilmikið sér til gagns ekki síður en þeir sem […]

Gaukar, frumsýning í Borgarleikhúsinu

gaukar

Föstudaginn 26. september kl. 20.00 verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins verkið Gaukar eftir Huldar Breiðfjörð í leikstjórn Jón Páls Eyjólfssonar. Huldar Breiðfjörð sló í gegn með bók sinni Góðir Íslendingar. Hann er þekktur fyrir næma sýn á mannfólkið og sér í lagi Íslendinga. Huldar nálgast fólk af hlýju en húmorinn er aldrei langt undan. […]

“Við erum kannski glæpamenn ..

kennethmani

.. en við erum alla vega ekki óheiðarlegir“ Fimmtudaginn 25. september frumsýnir Borgarleikhúsið verkið Kenneth Máni. Kenneth, sem er góðkunningi lögreglunnar og sló í gegn í Fangavaktinni, útskýrir lífið og tilveruna. Björn Thors fer á kostum í hlutverki Kenneth og er leikstjórn í höndum Bergs Þórs Ingólfssonar. Verkið sömdu Jóhann Ævar Grímsson, Saga Garðarsdóttir og […]

Leikfélag Hörgdæla æfir nýtt íslenskt leikrit

verksmidjukronika

Leikfélag Hörgdæla æfir nú af fullum krafti leikritið Verksmiðjukrónikan eftir Stefaníu Elísabetu Hallbjörnsdóttur og Sögu Jónsdóttur. Leikritið gerist á Akureyri um 1940. Verkafólk á  verksmiðjunum stendur í verkfallsbaráttu, bretar eru komnir og miklar breytingar verða í bænum. Karlmenn eru uggandi yfir þeim áhrifum sem hermenn hafa  t.d. á ungu stúlkurnar og bretaþvottur er ekki öllum […]

Enginn með Steindóri í Þorlákshöfn

ninabjork

Leikfélag Ölfuss hefur hafið æfingar á verkinu Enginn með Steindóri eftir Nínu Björk Jónsdóttur. Leikstjóri er F. Elli Hafliðason. Upphaflega var stefnt á að setja upp nýtt íslenskt leikrit, Einn rjúkandi kaffibolla, eftir heimamanninn Aðalstein Jóhannsson en því miður tókst ekki að fá nógu marga karlmenn til að leika í þetta sinn en karlmannsleysi hefur […]

Konan við 1000° í Þjóðleikhúsinu

konan1000

Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 26. september í Kassanum nýtt leikrit eftir Hallgrím Helgason í leikstjórn Unu Þorleifsdóttur. Skáldsaga Hallgríms Helgasonar Konan við 1000° vakti á sínum tíma mikla athygli og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Hún hefur nú verið þýdd á níu tungumál og hvarvetna hlotið góða dóma og viðtökur.

Fyrsta Uppspretta vetrarins í Tjarnarbíói

Popup-leikhúsið Uppsprettan verður haldið fjórum sinnum í Tjarnarbíói í vetur og sú fyrsta verður mánudagskvöldið 22. september næstkomandi. Uppsprettan gengur þannig fyrir sig að höfundar senda inn stuttverk sem aldrei hefur verið flutt áður. Sex manna dómnefnd fer svo yfir handritin og velur þrjú bestu handritin. Sólarhring fyrir frumflutning fá leikstjórar handritin í hendur.

Fréttir frá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs

lf

Leikfélag Fljótsdalshéraðs undirbýr sýningar á Þið munið hann Jörund í Valaskjálf. Æfingar hefjast í septemberlok og sýningar um miðjan nóvember. Þetta er sextugasta verkefni LF og leikstjóri verður Halldóra Malin Pétursdóttir.

Gullna hliðið fer í Borgarleikhúsið

gullnahlidid

Uppfærsla Leikfélags Akureyrar á Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson verður frumsýnt á stóra sviði Borgarleikhússins föstudaginn 19. september kl. 20.00. Sýningin vakti mikla athygli norðan heiða síðasta vetur og fékk mikið lof gagnrýnenda.  Egill Heiðar Anton Pálsson leikstýrir verkinu og aðalhlutverk er í höndum Maríu Pálsdóttur. Hljómsveitin Eva skipuð þeim Sigríði Eir Zophoníasardóttur og Jóhönnu […]

Blái hnötturinn, gestasýning frá Póllandi

blaihnotturinn

Borgarleikhúsið Teatr Miniatura frá Gdansk í Póllandi sýnir Bláa hnöttinn í leikstjórn Erlings Jóhannessonar daganna 18. og 19. september í Tjarnarbíó í Reykiavík og 21. september í Samkomuhúsinu á Akureyri. Þetta er pólsk frumuppfærsla á leikriti Andra Snæs Magnasonar eftir margverðlaunaðri bók Sagan af bláa hnettinum, sem þýdd hefur verið á yfir 30 tungumál. Bókin […]

Okkar eigin – Höfundasmiðja á Flateyri

grimur

Helgarnar 26-28. september og 4-6. / 11-13. /18-20. október verður haldin fjögurra helga leikhöfundasmiðja í Samkomuhúsi Flateyrar. Verkefnið er styrkt af Menningarráði Vestfjarða og verður kynnt öllum áhugaleikfélögum á Vestfjörðum. Val stendur um að sækja allar fjórar helgarnar eða stakar helgar eftir atvikum.

Lína langsokkur í Borgarleikhúsinu

lina

Laugardaginn 13. september kl. 14.00 frumsýnir Borgarleikhúsið Línu Langsokk í leikstjórn Ágústu Skúladóttur og nafna hennar Ágústa Eva Erlendsdóttir fer með hlutverk hinar einu sönnu Sigurlínu Rúllugardínu Nýlendínu Krúsimundu Efraimsdóttur Langsokks.  Leikmyndin er í höndum Ilmar Stefánsdóttur og María Th. Ólafsdóttir sér um búninga.

Laus pláss á barna- og unglinganámskeið

Kemurru_200x150

Leikfélag Kópavogs stendur fyrir barna- og unglinganámskeiðum í haust. Enn eru laus pláss á námskeiðin sem hefjast 10. sept. og standa til loka nóvember. Námskeiðin eru annarsvegar fyrir aldurinn 11-12 ára og hinsvegar fyrir unglinga á aldrinum 13-16 ára. Námskeið verða vikulega á miðvikudögum kl. 16.00-17.00 fyrir yngri hóp en kl. 17.15-19.15 hjá eldri hópi […]

Róðarí, frumsýning í Tjarnarbíói

rodari

Auðlind – leiklistarsmiðja frumsýnir í Tjarnarbíói 16. september nýtt íslenskt leikrit, Róðarí eftir Hrund Ólafsdóttur. Fjögur systkini á miðjum aldri og móðir þeirra neyðast til að hittast þegar ein systirin veikist og þarf á hjálp að halda. Samheldni er ekki þeirra sterkasta hlið. Það er því þrautin þyngri að þurfa í sameiningu að ráða fram […]

Skráningar hafnar í leiklistarskóla LA

laskoli2014

Leiklistarskóli Leikfélags Akureyrar hefur verið starfandi frá því árið 2009. Fjöldi nemenda hefur streymt í gegnum námið sem sett er upp í aldursskiptum heilsárs námskeiðum. Um 75 nemendur sækja skólann á hverju misseri og hafa margir hverjir verið með frá upphafi. Skólinn er ætlaður börnum og unglingum í 3. – 10. bekk grunnskóla. Skólasókn er […]

Opinn samlestur á farsanum Beint í æð

beintiaed

Nýjung hjá Borgarleikhúsinu. Nú gefst áhugafólki um leikhús tækifæri til að koma á opinn samlestur í Borgarleikhúsinu. Verkið Beint í æð eftir Ray Cooney í leikstjórn Halldóru Geirharðsdóttur verður leiklesið þriðjudagsmorguninn 9. september kl 9. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum.

Líf og fjör hjá Halaleikhópnum

halinnleikstj

Mikið er um að vera hjá Halaleikhópnum um þessar mundir. Námskeið í Sagnalist með Ólöfu Ingibjörgu Davíðsdóttur er um það bil að hefjast og stefnt er að því að halda Ljósanámskeið í október með Benedikt Axelssyni. Og nú var Halaleikhópurinn að ráða Guðjón Sigvaldason leikstjóra til að leikstýra hópnum í vetur.

Valgeir Skagfjörð

Netfang valliskag@gmail.com Símanúmer 7807911 Hef verið viðloðandi leikhús frá úrskrift 1987. Starfað sem leikari, leikstjóri og höfundur. Undanfarin ár hef ég unnið talsvert á Norðurlandinu. Hér að neðan getu að líta ítarlega ferilskrá ef fólk vill átta sig betur á reynslu minni og fyrri störfum. En í sem stystu máli þá hef ég á síðustu […]

Íslenskur vetur hjá Þjóðleikhúsinu

2014-15

Þjóðleikhúsið býður upp spennandi leikár þar sem öll frumsýnd verk verða íslensk. Kastljósinu verður varpað sérstaklega á konur og baráttusögur þeirra við ólíkar aðstæður, en líka karlmanninn, raunir hans og dáðir. Að auki verða kynnt nútímaleg dansleikhúsverk og síðast en ekki síst er börnum á öllum aldri boðið upp á fjölbreytt úrval leiksýninga.

Petra, tvær aukasýningar í Tjarnarbíói

petra

Listahópurinn DFM, sem færði okkur Dansaðu fyrir mig síðasta vetur, sýnir tvær aukasýningar á nýja verkinu Petra. Sýningarnar fara fram 5. og 11. september. Margir Íslendingar kannast við Petru, en hún kom á fót glæsilegu steinasafni á Austfjörðum. Þegar frú Petra Sveinsdóttir á Stöðvarfirði var spurð hvort álfasamfélagið væri ekki í algjöru uppnámi vegna steinasöfnunar […]

Sumri Frystiklefans lýkur með heimsókn í Tjarnarbíó

trudleikur

Til að kveðja sumarið og heilsa haustinu munu öðlingarnir Kári Viðarsson og Benedikt Karl Gröndal færa Trúðleik eftir Hallgrím H. Helgason á svið í Tjarnarbíó. Halldór Gylfason leikstýrði verkinu fyrir Frystiklefann árið 2012 og hlaut einróma lof gagnrýnenda og enginn leiklistaráhugamaður eða kona ætti að missa af. Trúðleikur verður sýndur í september á sunnudögum kl. […]

NEATA stuttverkahátíðin 4. október

neata-farve-small

NEATA stuttverkahátíðin verður haldin í Mosfellsbæ 4. október 2014. Hátíðin verður með tiltölulega hefðbundu einþáttungahátíðarsniði, hámarkslengd þátta er 15 mínútur. Frestur til að tilkynna þátttöku á hátíðinni er til 10. september. Ekki verða gerð sérstök eyðublöð fyrir þátttökutilkynningar heldur skal senda þær með tölvupósti á info@leiklist.is

IATA/AITA hátíð í Belgíu 2015

logo

Dagana 6.-13. júlí 2015 verður alþjóðleg leiklistarhátið áhugamanna haldin í Westouter í Belgíu. Hátíðin er haldin annað hvert ár víðsvegar um heiminn, sú síðasta var haldin í Monaco 2013. Hátíðin er á vegum Alþjóða áhugaleikhúsráðsins IATA/AITA. Til hennar er boðið leiksýningum alls staðar að út heiminum og lögð áhersla  á að allar heimsálfur eigi þar […]

Nýtt leikár að hefjast í Borgarleikhúsinu

augl2014

Borgarleikhúsið kynnir leikárið 2014-2015 með glæsilegu blaði sem kom út í vikunni. Kortasalan hófst í gærmorgun. Dagskrá vetrarins er fjölbreytt og má þar sjá allt frá erlendum gömlum klassískum verkum til glænýrra íslenskra verka sem voru skrifuð sérstaklega fyrir Leikfélag Reykjavíkur. Aðsókn í Borgarleikhúsið hefur aukist jafnt og þétt á síðustu árum og er meiri […]

Kameljón í Tjarnarbíói

kameljon

Kameljón er einleikur með Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur, í leikstjórn Friðgeirs Einarssonar. Einstök aðlögunarhæfni og sífelld hamskipti valda því að Kameljónið veit ekki lengur hver grunnlitur þess er. Hefur hún, Kameljónið, eitthvert eiginlegt sjálf eða er hún aðeins endurspeglun þeirra sem á vegi hennar verða í lífinu? Hún ákveður að hafa uppi á sjálfri sér, hvað […]

Haraldurinn – þema: pólitík

haraldurinn

Meðlimir í fyrsta langspunaleikhóp landsins spyrja áhorfendur út í pólitíkina. Svörin eru notuð sem efniviður í gamansýningu sem samin er á staðnum og tekur um það bil hálftíma í flutningu. Ekkert er ákveðið fyrirfram og sýningin verður aldrei aftur endurtekin.

Bláskjár aftur á svið í Borgarleikhúsinu

balskjar

Bláskjár eftir Tyrfing Tyrfingsson er íslenskt gamandrama, með súrum keim, og fjallar um einlæga löngun tveggja systkina í Kópavogi (skammt frá Hamraborg) til að endurnýta sig og byrja lífið upp á nýtt. Reyndar fjallar það um sitthvað fleira, til dæmis feðraveldið, grimmdina, ofbeldið og veikburða getu okkar til þess að segja hvert öðru satt – og […]

Reið, frumsýning í Borgarleikhúsinu

reid

Í dansverkinu Reið stíga á svið níu flóknar skepnur. Glæsilegar, ljósar yfirlitum, holdugar, loðnar og gljáandi. Dásamlega dramatískar, skapmiklar, villtar og viðkvæmar. Þær eru með tígulegan limaburð, langan háls, sterka leggi, breið bök og mjúkar línur. Þægar en óútreiknanlegar, varar um sig, þolinmóðar og gáfaðar. Tillitssamar, kærleiksríkar, kynæsandi og kraftmiklar. Þetta eru hraustar, frjóar og […]

NÁLÆGÐ – Lókal 2014

lokal2014

Lókal – alþjóðleg leiklistarhátíð verður haldin í 7. sinn dagana 27.-31. ágúst n.k. Í þetta sinn einbeitir hátíðin sér að samskiptum innanbúðarmanna- og kvenna í íslensku samfélagi; afmörkuðum áhyggjum þeirra af ástinni, fjölskyldu, innilokunarkennd, túrisma og leigumarkaði.

ALIEN CITIZEN: An Earth Odyssey

aliencitizen

Hver ertu þegar þú kemur allstaðar að, en á sama tíma frá engum sérstökum stað? ALIEN CITIZEN: An Earth Odyssey er skemmtilegur og hnyttinn einleikur um hvernig það er að alast upp með fjölþjóðlegan bakgrunn, frá Mið-Ameríku, Norður-Afríku, Mið-Austurlöndum og Nýja Englandi.

Uppsprettan auglýsir eftir handritum

uppsprettan

Við hjá Uppsprettunni erum að leita eftir handritum sem aldrei hafa verið flutt á sviði áður. Þau mega vera mest 8 blaðsíður að lengd, eða 8 blaðsíðna heilsteypt atriði. Því miður eru einleikir ekki leyfðir og hver höfundur má einungis senda inn eitt handrit. Engar aðrar kröfur eru gerðar.

Landsliðið á línu

landslidid

Verkið Landsliðið á línu, sem verið er að sýna í Tjarnarbíói, er skrifað og leikið af Arnari Dan Kristjánssyni og fjallar um ungan dreng sem ræður sig á um borð á línubát í von um að geta fyllt vasa sína af peningum en lendir í hrömmunum á áhöfn sem tekur meira en nokkrir peningar geta […]

Sagnalist – námskeið hjá Halaleikhópnum

sagnalist

Námskeið í því að segja fullorðnu fólki sögur verður haldið í Halanum í september. Leiðbeinandi verður Halaleikkonan Ólöf I. Davíðsdóttir sem lagði land undir fót og lærði svolítið um sagnalistina í útlöndum. Í lok námskeiðs verður haldin skemmtun þar sem nemendur segja sögurnar sem þeir hafa æft á námskeiðinu.

Fréttir frá Íslensku óperunni

operan

Á komandi haustmisseri verður ráðist í metnaðarfullt verkefni hjá Íslensku óperunni – sviðssetningu á einni af umfangsmestu óperum Verdis, Don Carlo, sem aldrei hefur verið sviðssett á Íslandi áður. Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýrir sýningunni og hefur hún Pál Ragnarsson ljósahönnuð og Þórunni Sigríði Þorgrímsdóttur búninga- og leikmyndahöfund sér til fulltingis. Guðmundur Óli Gunnarsson verður hljómsveitarstjóri. Flutt […]

Heima er best, sirkussýning

sirkusislands

Heima er best er alíslensk sirkusskemmtun þar sem öll fjölskyldan nýtur þess að horfa á ótrúlega leikni listamanna Sirkuss Íslands. Sýningin er tveir tímar með kortérs hléi og hentar öllum frá 5 ára aldri og þolinmóðum yngri krökkum. Grippl, húlla, loftfimleikar, einhjólalistir og svo margt fleira er sett saman svo úr verður sannkölluð sirkusupplifun, með […]

How to become Icelandic in 60 min

howtobecome

How to become Icelandic in 60 minutes er leiksýning sem leikin er á ensku, samin og flutt af Bjarna Hauki Þórssyni og leikstýrt af Sigurði Sigurjónssyni. Verkið var frumsýnt í Hörpu 25. maí. How to become Icelandic in 60 minutes er sambland af söguleikhúsi og uppistandi þar sem reynt er að kenna þeim sem sýninguna […]

Tuttugu viðburðir á Act alone í ár

actalone2014

Einleikjahátíðin Act alone verður haldin í sjávarþorpinu Suðureyri dagana 6. – 10. ágúst. Dagskráin er sérlega fjölbreytt og einleikin. Alls verður boðið uppá 20 einleikna viðburði eitthvað fyrir alla konur og kalla eða bara frá 2ja til 102ja ára. Aðgangur að öllum viðburðum Act alone er ókeypis og öllum opin. Act alone var fyrst haldin […]