Fangi freistinganna í Tjarnarbíói

Fangi freistinganna er gjörningur sem mun fara fram í anddyri Tjarnarbíós frá 14. nóvember kl. 17.00 til 15. nóvember kl. 17.00. Jóhanna Lind Þrastardóttir, 26 ára gömul leikkona, stendur fyrir gjörningnum: „Ég ætla að loka mig þar inni í 24 klukkustundir umkringd þeim freistingum sem mér finnst erfiðast að standast án þess að falla fyrir […]
Dansverk í Frystiklefanum

Föstudagskvöldið 14. nóvember heldur belgíski dansarinn Mirte Bogaert sýningu á nýju verki í Frystiklefanum á Rifi. Mirte hefur haft aðsetur í klefanum frá því í byrjun október og unnið ötullega að þessu nýja dansverki sem sækir innblástur sinn í náttúruna og veðrið á Snæfellsnesinu.
Fullkomið brúðkaup á Hellu

Föstudagskvöldið 7. nóvember kl. 20.30 frumsýnir Leikfélag Rangæinga Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon í Hellubíói á Hellu. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson og Örn Árnason þýddi verkið. Fullkomið brúðkaup er sprúðlandi farsi þar sem mannlegur breiskleiki og illa ígrundaðar lygar koma af stað atburðarás sem getur ekki endað nema á einn veg. Með ósköpum.
Lokasýning á Hamskiptunum

Leiksýning Vesturports Hamskiptin verður sýnd í allra síðasta sinn í Þjóðleikhúsinu miðvikudaginn 19. nóvember. Með aðalhlutverk í sýningunni fer Gísli Örn Garðarsson. Sýningin hefur nú verið sýnd að nýju við frábærar viðtökur í Þjóðleikhúsinu og er um að gera að festa sér miða á þessa mögnuðu sýningu hið allra fyrsta!
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Special Blood IEV er fljótandi gerfiblóð til ýmissa nota. Það rennur hægt og virkar mjög raunverulegt. Blóðið næst vel úr flestum efnum og það er í lagi að nota það í munn, s.s. sem fyllingu í gelatínhylki. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert […]
Auaksýning á Elskhuganum

Uppselt er á síðustu sýningu, föstudag 7. nóv. á Elskhuganum eftir Harold Pinter sem Leikfélag Kópavogs hefur sýnt undanfarið. Bætt hefur verið við aukasýningu þriðjudaginn 11. nóvember. Viðtökur gesta hafa verið mjög góðar og má m.a. benda á lofsamlega umsögn Árna Hjartarsonar hér á Leiklistarvefnum en hann segir að Elskhuginn sé „… sýning sem áhugafólk […]
Útlenski drengurinn í Tjarnarbíói

Útlenski drengurinn er gamanleikur með alvarlegum undirtóni fyrir stálpaða krakka sem fullorðna. Dóri DNA leikur Dóra litla sem er vinsælasti strákurinn í bekknum þangað til hann er látinn taka svokallað Pítsa próf sem snýr öllu lífi hans umsvifalaust á hvolf. Hann er sviptur grundvallarmannréttindum og látinn bíða örlaga sinna innilokaður í myrkvaðri skólastofu. Verkið veltir […]
Siðlaus, óþolandi og skemmtileg Arnarnesfjölskylda

Leikfélag ÖlfussEnginn með SteindóriHöfundur: Nína Björk JónsdóttirLeikstjóri: F. Elli Hafliðason Nýjasta stykki Leikfélag Ölfuss er tilþrifamikið verk og ærslafullt. Raunar svo mjög að framan af var undirrituð full efasemda um ágæti þessa. Aðalleikarinn Erla Dan Jónsdóttir hélt uppi fjöri á fjölunum sem oft og einatt keyrðu langt úr hófi. En þegar líður á sýninguna rennur […]
Ragnheiður snýr aftur í desember

Óperan Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson snýr aftur á svið Íslensku óperunnar í desember, eftir mikla sigurgöngu síðastliðið vor. Alls urðu sýningar á óperunni þrettán talsins í Eldborg í Hörpu og komust færri að en vildu. Sýningin hlaut tíu tilnefningar til Grímunnar og var í kjölfarið valin Sýning ársins 2014, auk þess sem […]
Aukasýning á Róðaríi

Leiksýningin Róðarí hefur fengið góðar móttökur og því hefur verið bætt við einni aukasýningu, en sú verður sú síðasta á leikritinu að þessu sinni. Sýningin verður í Tjarnarbíói laugardaginn 8. nóvember, kl. 20:00.
Bláskjár á ensku í Borgarleikhúsinu

Borgarleikhúsið fetar í forspor erlendra leikhúsa með því að sinna enskumælandi áhorfendum með textuðum sýningum. Þriðjudaginn 11. nóv verður sýningin Bláskjár þýddur á enskan texta sem varpað verður á vegg leikmyndar. Bláskjár Tyrfing Tyrfingssonar var frumsýnt á síðasta leikári og hefur sannarlega slegið í gegn því margar aukasýningar hafa bæst við. Bláskjár er íslenskt gamandrama, […]
Elskhugi á ferð í Kópavogi

Leikfélag KópavogsElskhuginn eftir Harold PinterÞýðing Ingunn ÁsdísardóttirLeikstjórn Örn Alexandersson Það var húsfyllir í sal Leikfélags Kópavogs þegar ég mætti til leiks 30. október síðastliðinn á aðra sýningu á leikritinu Elskhuganum eftir nóbelsverðlaunahöfundinn Harold Pinter. Þetta er stutt leikrit sem fjallar um ástir samlyndra hjóna, semsagt afar ófrumlegt og lítt áhugavert efni en sett fram á […]
Draugaveiðar í Hafnarfirði

Göngum aftur hópurinn leitar að draugum og öðrum verum að handan. Draugaleit gefur þátttakendum tækifæri á að taka þátt í rannsóknum á yfirnáttúrulegum hlutum íöruggri umsjón Göngum aftur. Við skipuleggjum draugagöngur í ýmsum híbýlum í Hafnarfirði sem þekkt eru fyrir draugagang, við leitum að þeim verum sem ásækja þessar vistarverur og notum til þess hina […]
Næstu sýningar á Enginn með Steindóri

Leikfélag Ölfuss frumsýndi leikritið Enginn með Steindóri eftir Nínu Björk Jónsdóttur í leikstjórn Don Ellione fyrir fullu húsi síðastliðinn laugardag 25. október. Áhorfendur skemmtu sér konunglega og miðasalan er í fullum gangi. Leikstjóri er F. Elli Hafliðason.
Opinn samlestur á Dúkkuheimili

Nú gefst áhugafólki um leikhús tækifæri til að koma á opinn samlestur í Borgarleikhúsinu. Verkið Dúkkuheimili eftir Henrik Ibsen verður leiklesið mánudagsmorguninn 3. nóvember kl 10. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum […]
Jólasýning Borgarbarna er Mamma Gjé

Jólasýning Borgarbarna árið 2014 heitir Mamma Gjé. Þetta er níunda árið sem Borgarbörn setja upp jólasöngleik sem ætlaður er öllum aldurhópum og stílað er inn á fjölskylduskemmtun. Þessi skemmtilegi jólasöngleikur inniheldur fjölmörg vinsæl erlend lög í íslenskum búningi, óvæntar uppákomur og kraftmikla dansa. Leikstjóri og höfundur handrits er Erla Ruth Harðardóttir og henni til aðstoðar […]
Narfi í Þjóðleikhúskjallaranum

Þriðjudagskvöldið 28. október klukkan 20 flytur Árni Kristjánsson, leikstjóri og leikritahöfundur, frumsaminn einleik um Narfa eitt fyrsta leikrit Íslendinga. Verk Árna er í fyrirlestrarformi og er samið til heiðurs Sveini Einarssyni sem fagnaði áttatíu ára afmæli sínu í ár. Aðgangur er ókeypis og aðeins stefnt að einni sýningu.
Síðasta sýning á Róðaríi

Nú er aðeins ein sýning eftir á leikritinu Róðarí eftir Hrund Ólafsdóttur, sem sýnt er í Tjarnarbíói. Verkið, sem tekur á viðkvæmu málefni, samskiptum innan fjölskyldunnar í skugga áfalla í fortíðinni, hefur verið lofuð jafnt af gagnrýnendum sem almennum áhorfendum. Lokasýning verður 30. október og hefst klukkan 20.00. Leikstjóri er Erling Jóhannesson.
Vinnslan frumsýnir sitt fyrsta leikverk

Í Strengjum blandar Vinnslan saman listformum og setur upp verk sem fjallar um sjálft vinnuferlið. Hvaðan kemur efniviðurinn? Er einlægnina að finna bakvið tjöldin? Kemur sannleikurinn í ljós? Er sannleikurinn yfir höfuð áhugaverður? Sýningin er frumsýnd í Tjarnarbíói í kvöld, fimmtudag, kl. 20:00.
Beint í æð í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 31. október frumsýnir Borgarleikhúsið á stóra sviðinu farsann Beint í æð eftir Ray Cooney. Hilmir Snær Guðnason fer með aðalhlutverkið en leikstjórn er í höndum Halldóru Geirharðsdóttur. Hlátrasköll hafa borist af æfingum síðustu mánuði og er nokkuð víst að um mikla gleðisprengju er að ræða.
Leikfélag Rangæinga æfir Fullkomið brúðkaup

Leikfélag Rangæinga æfir nú af kappi breska farsann Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon í þýðingu Arnar Árnasonar. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson og er þetta í annað skiptið sem hann leikstýrir hjá félaginu en hann leikstýrði einnig Góðverkin kalla á síðasta leikári. Frumsýnt verður 7. nóvember í Hellubíói á Hellu.
Leikfélag Kópavogs frumsýnir Elskhugann

Leikfélag Kópavogs frumsýnir Elskhugann eftir Harold Pinter sunnudaginn 26. okt. kl. 20.00. Harold Pinter er eitt af áhrifamestu leikskáldum samtímans og vann Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2005. Eins og mörg verka hans er Elskhuginn margslungið verk. Það fjallar um samband hjóna sem lifa óvenjulegu hjónabandi svo ekki sé meira sagt og hefur af sumum verið […]
Aukasýningar á Emil á Sauðárkróki

Uppselt á 4 sýningar í röð – 3 aukasýningar Bætt hefur verið við þremur aukasýningum á Emil í Kattholti en uppselt hefur verið á fimm sýningar af átta. Leikfélag Sauðárkróks þakkar góðar viðtökur. Aukasýningar verða föstudag, laugardag og sunnudag.
Leikfélag Ölfuss frumsýnir Enginn með Steindóri

Leikfélag Ölfuss frumsýnir leikritið Enginn með Steindóri eftir Nínu Björk Jónsdóttur laugardagskvöldið 25. október kl. 20:00. Leikstjóri er F. Elli Hafliðason. Leikarar í sýningunni eru þau Aðalsteinn Jóhannsson, Axel Bergmann Sigurðsson, Árný Leifsdóttir, Benjamín Hallbjörnsson, Erla Dan Jónsdóttir, Hilmar Kristberg Jónsson, Jónheiður Ísleifsdóttir, Oddfreyja H. Oddfreysdóttir og Ólöf Þóra Þorkelsdóttir. Sýnt verður í Ráðhúsinu í […]
Brúðkaup í Fjallabyggð

Leikfélag Fjallabyggðar frumsýnir gamanleikinn Brúðkaup eftir Guðmund Ólafsson föstudaginn 17. október kl. 20.00 í Menningarhúsi Fjallabyggðar, Tjarnarborg. Guðmundur er einnig leikstjóri verksins. Síðasta verk Leikfélags Fjallabyggðar, Stöngin inn, var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2012-13 en það verk var líka skrifað og leikstýrt af Guðmundi Ólafssyni.
Rommí á Bíldudal

Leikfélagið Baldur á Bíldudal vaknar úr nokkurra ára dvala núna á laugardag. Þá mun félagið frumsýna ameríska stykkið Rommí. Í aðalhlutverkum eru tveir af burðarásum félagsins í gegnum árin Hannes Friðriksson og Þuríður Sigurmundsdóttir. Bæði hafa þau starfað ötulega með félaginu síðustu áratugi. Hér er á ferðinni bráðhress gamanleikur en þó með alvarlegum undirtón.
Hundur í óskilum sýnir Öldina okkar

Félagarnir Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson í hljómsveitinni Hundur í Óskilum voru farnir að gæla við þá hugmynd að setja á svið gríðarstórt sjóv með 20 dönsurum og leikurum í tilefni af 20 ára afmæli sveitarinnar. Þeir neyddust hins vegar til að sníða sér stakk eftir vexti og nú trana þeir engum öðrum fram en sjálfum sér (enn […]
Óperan Don Carlo í fyrsta sinn á Íslandi

Óperan Don Carlo verður frumsýnd í Íslensku óperunni í Hörpu næstkomandi laugardag. Í aðalhlutverkum í þessu mikilfenglega stórvirki Giuseppe Verdi eru Jóhann Friðgeir Valdimarsson í titilhlutverkinu, Kristinn Sigmundsson í hlutverki Filippusar konungs, Hanna Dóra Sturludóttir í hlutverki Eboli prinsessu, Helga Rós Indriðadóttir í hlutverki Elisabettu drottningar og Oddur Arnþór Jónsson í hlutverki Rodrigo, en þau […]
Verksmiðjukrónikan frumsýnd á Melum

Leikfélag Hörgdæla frumsýnir þann 16. október leikritið Verksmiðjukrónikan eftir Stefaníu Elísabetu Hallbjörnsdóttur og Sögu Jónsdóttur. Leikritið gerist á Akureyri um 1940. Verkafólk á verksmiðjunum stendur í verkfallsbaráttu, bretar eru komnir og miklar breytingar verða í bænum.
Syngjandi glaðir rassálfar og ræningjar

Leikfélag MosfellsbæjarRonja ræningjadóttir eftir Astrid LindgrenLeikstjórn: Agnes Wild Tónlistarstjórn: Sigrún Harðardóttir Leikmynda-og búningahönnun: Eva Björg Harðardóttir Ronja ræningjadóttir er saga um vináttu, kærleika og hugrekki. Vináttu sem sigrar þrátt fyrir erfiðar hindranir. Hvernig sigrast má á hindrunum og hvernig það er miklu auðveldara að vera ekki hræddur ef maður á einhvern að. Astrid Lindgren hefur […]
Lífið, drullumall fyrir alla fjölskylduna
Lífið er stórskemmtilegt drullumall á mörkum leikhúss og myndlistar fyrir alla fjölskylduna. Leikhúsið 10 fingur, sem stendur að þessari sýningu, setti upp verðlaunasýninguna Skrímslið litla systir mín og hlaut Grímuverðlaunin sem besta barnasýning ársins 2012. Lífið verður frumsýnt í 18. október í Tjarnarbíó.
Karitas, frumsýning 17. okt.

Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 17. október á Stóra sviðinu nýtt leikrit byggt á skáldsögum Kristínar Marju Baldursdóttur um listakonuna Karitas í leikstjórn Hörpu Arnardóttur. Skáldsögur Kristínar Marju, Karitas án titils og Óreiða á striga, hafa notið mikilla vinsælda og óhætt er að segja að sýningarinnar hafi verið beðið með mikilli eftirvæntingu og hefur nú þegar þurft […]
Eldklerkurinn snýr aftur

Til að róa huga borgarbúa í ljósi eldsumbrota á miðhálendinu mun Eldklerkurinn snúa aftur í Tjarnarbíó í október. Eldklerkurinn er einleikur um séra Jón Steingrímsson og Skaftárelda, í uppsetningu Möguleikhússins. Leikritið var sýnt í Hallgrímskirkju og Tjarnarbíói síðasta vetur og naut mikilla vinsælda. Í framhaldinu ferðaðist Möguleikhúsið með verkið um landið og sýndi víða. Verkið verður aðeins sýnt […]
Námskeið fyrir innflytjendur

Á leikárinu 2014 – 2015 mun sviðslistahópurinn við og við standa fyrir leiklistarnámskeiði í Borgarleikhúsinu. Kennsla fer fram á ensku en lögð er áhersla á tjáningu án orða og er fólk af erlendum uppruna, gestir og innflytjendur, sérstaklega velkomið.
Umbreyting, tvær aukasýningar

Bernd Ogrodnik brúðulistamaður hefur farið víða um heim með sýningu sína Umbreytingu eftir að hún var sýnd hér á landi við frábærar viðtökur á Listahátíð árið 2006. Nú er tækifæri til að sjá sýninguna áður en hún heldur í heimsreisu!! Bernd hefur farið víða um heim með sýninguna frá 2006. Mikið hefur verið spurt eftir […]
Leikfélag Sauðárkróks sýnir Emil í Kattholti

Í ár eru 30 ár síðan Leikfélag Sauðárkróks sýndi fyrst barnaleikrit, en í desember árið 1984 setti félagið upp Galdrakarlinn í Oz. Frá árinu 2000 hafa barnasýningar verið á dagskrá hjá félaginu að hausti til. Á þessu hausti setur félagið upp Emil í Kattholti. Strákhnokkinn Emil er kunnur fyrir uppátæki sín og iðulega sendur í […]
Ronja í Mosfellsbæ

Leikfélag Mosfellssveitar frumsýndi söngleikinn Ronja ræningjadóttir þann 27. september s.l. Sagan er eftir Astrid Lindgren, þýðandi er Þorleifur Hauksson og tónlist er eftir ýmsa aðila og einnig frumsamin. Leikstjóri er Agnes Wild, tónlistarstjóri er Sigrún Harðardóttir, leikmynd og búninga sér Eva Björg Harðardóttir um. Sagan af Ronju Ræningjadóttur gerist í Matthíasarskógi þar sem ræningjaforinginn Matthías […]
Hugleikur til Belgíu 2015

Alþjóðlega áhugaleikhúsráðið, IATA, stendur fyrir leiklistarhátíðum víða um heim á tveggja ára fresti. Sú næsta verður í Westouter í Belgíu árið 2015. Umsóknarfrestur til að fara með sýningu á hátíðina rann út 25. september og sóttu tvö leikfélög um. Stjórn Bandalagsins skipaði nefnd til að velja á milli sýninganna og skilaði hún af sér í […]
All Change Festival í Reykjavík

All Change Festival er sviðslistahátíð sem fer fram í Tjarnarbíói 4. og 5. október og beinir sjónum að ólíkri sköpun leiksýninga og spyr: „hvað er leikrit?“ Hátíðin byggir á alþjóðlegu samstarfi leikhúslistamanna en All Change Festival fer fram á sama tíma í Reykjavík, London, Augsburg, New York og New Orleans. All Change Festival er hluti […]
Stuttverkahátíð NEATA

NEATA stuttverkahátíðin verður haldin í Leikhúsinu að Funalind 2 í Kópavogi laugardaginn 4. október. Hátíðin hefst kl. 13.00 og endar á sameiginlegum hátíðarkvöldverði í Hlégarði í Mosfellsbæ. Á hátíðinni verða sýnd 15 stuttverk frá 3 upp í 15 mín. að lengd. Þegar sýningum lýkur sjá Sigriður Lára Sigurjónsdóttir og Karl Ágúst Úlfsson um gagnrýni […]
