Óþekkur er ætíð anginn sá
Leikfélag KópavogsGutti og félagar eftir Örn Alexandersson byggt á kvæðum Stefáns JónssonarLeikstjóri: Örn Alexandersson „Gutti aldrei gegnir þessu, grettir sig og bara hlær…“. Þessar línur þekkja líklega allir Íslendingar sem komnir eru til vits og ára. Gutti er einn ódælasti drengurinn í íslenskri bókmenntasögu og nú má fylgjast með uppátækjum hans á fjölunum hjá Leikfélagi Kópavogs. Örn Alexandersson hefur þar sett saman barnaleikrit með söngvum, Gutti og félagar, byggt á Guttavísum og fleiri kvæðum eftir Stefán Jónsson. Í leikskránni er spurt hvort að Gutti hafi verið dæmdur of hart í gegnum tíðina. Miðað við uppsetninguna í Kópavogi má segja...
Read More


