Sólheimaleikhúsið sýnir Skilaboðaskjóðuna
Sumardaginn fyrsta frumsdýndi Sólheimaleikhúsið fjölskylduleikritið Skilaboðaskjóðunni eftir Þorvald Þorsteinsson. Leikstjórinn er Lilja Nótt Þórarinsdóttir leikkona sem útskrifaðist frá Leiklistarskólanum 2009 og hefur síðan starfað hjá Þjóðleikhúsinu og sett upp eigin sýningar, nú síðast leikstýrði hún leikritinu Þrek og Tár á Selfossi. Skilaboðaskjóðan er bráðskemmtilegt og líflegt barnaleikrit með fallegum boðskap. Í leikritinu segir frá íbúum Ævintýraskógarins þar sem öll ævintýrin gerast. Þegar Náttröllið rænir Putta litla syni Möddumömmu og ætlar sér að breyta honum í tröllabrúðu þá taka allir höndum saman. Nú eru góð ráð dýr því það þarf að bjarga Putta áður en að sólin hverfur á bak...
Read More


