Author: lensherra

Grande sýnt í Tjarnarbíói

Leiksýningin Grande eftir Tyrfing Tyrfingsson verður sýnd í Tjarnarbíó 3., 5., 10. og 11. maí kl. 20. Þetta er verk um Ödipusarduldina og hvernig karlmenn af ákveðinni kynslóð þurfa, áður en þeir komast til manns, að myrða þessa gömlu konu sem hangir inni í þeim og segir þeim að þeir séu þunglyndir, eigi að hætta að reykja og ekki fara neitt. Leikari er Hjörtur Jóhann Jónsson en höfundur og leikstjóri er Tyrfingur Tyrfingsson. Grande segir sögu af móður og syni í Hlíðunum. Hún hefur brennt allar brýr sér að baki og syni hennar en þessa dagana æfa þau dragsýningu...

Read More

Tímalausar Spilaborgir

HugleikurSpilaborgirHöfundur: Ásta GísladóttirLeikstjórar: Sigurður H. Pálsson og Þorgeir Tryggvason Mömmudrengurinn Kári er ofvaxið og dálítið aulalegt barn á þrítugsaldri. Í stað þess að takast á við lífið utan heimilisins hefur hann valið sér það hlutskipti að  sinna lasinni móður sinni og byggja spilaborgir. Kári lifir við konuríki og örlagadísirnar birtast í líki þriggja nágranna sem reiða hvorki gáfur né gæfu í þverpokum. Mannlífið er málað í litum kaldhæðni og miskunnarleysis, en er samt svo líkt því sem gerist allt í kringum okkur. Þú getur lifað í núinu eða fortíðinni segja þær, lokað þig af eða stigið út. Kári kýs að...

Read More

Einþáttungahátíðin í Logalandi 3. maí

Í tengslum við aðalfund Bandalag íslenskra leikfélaga um næstu helgi verður haldin einþáttungahátíð í félagsheimilinu Logalandi föstudaginn, 3. maí kl. 20.30. Þar munu fjögur leikfélög sýna fimm einþáttunga, ýmist frumsamda eða eftir erlenda höfunda. Leikfélögin sem sýna eru Hugleikur, Leikfélag Kópavogs, Leikfélag Mosfellssveitar og Leikfélag Ölfuss. Að sýningum loknum mun Kjartan Ragnarsson, leikstjóri og leikskáld, fjalla um sýningarnar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Verkin sem sýnd verða eru: 1. Leikfélag MosfellssveitarÁ fjöllumeftir Maríu GuðmundsdótturLeikstjórar: Bóel Hallgrímsdóttir og Ólöf A. Þórðardóttir 2. Hugleikur Beljureftir Árna FriðrikssonLeikstjóri: Sigurður H. Pálsson 3. Leikfélag ÖlfussTómatsósaneftir Anthony Devaney MorinelliÞýðandi...

Read More

17 sýningar eru í valinu á Athyglisverðasta áhugaleiksýningin

Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins 2012-13 verður tilkynnt á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga sem haldinn verður í félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal í Borgarfirði dagana 3.-4. maí. Alls eru það 17 sýningar frá jafnmörgum félögum sem berjast um að hljóta útnefninguna og fara á svið í Þjóðleikhúsinu í byrjun sumars. Eftirtalin verk sækja um að vera útnefnd sem Athyglisverðasta áhugaleiksýningin 2013: 1. Borgarbörn, barna- og unglingaleikhús – Jólaævintýrið eftir Erlu Ruth Harðardóttur sem jafnframt leikstýrir.2. Freyvangsleikhúsið – Dagatalsdömurnar eftir Tim Firth. Leikstjóri: Sigrún Valbergsdóttir.3. Halaleikhópurinn – Rympa á ruslahaugnum eftir Herdísi Egilsdóttur. Leikstjóri: Herdís Ragna Þorgeirsdóttir.4. Leikdeild Ungmennafélags Gnúpverja...

Read More

Hugleikur frumsýnir Spilaborgir

Nýtt íslenskt leikrit, Spilaborgir, verður frumsýnt í húsnæði Hugleiks, Eyjarslóð 9, sunnudaginn 28. apríl. Hvað gerist þegar ungur kolbítur finnur tösku fulla af peningum ásamt absinthe-flösku og illa kveðnu ljóði? Um afleiðingarnar þess fjallar Spilaborgir. Höfundur er Ásta Gísladóttir, annar ritstjóra menningartímaritsins Spássíunnar. Hún hefur áður tekið þátt í leikritun fyrir Hugleik, en þreytir nú frumraun sína sem einsamall höfundur. Finnandi töskunnar á í talsverðum vandræðum með að reikna út hvernig best er að vinna úr stöðunni. Þótt nágrannarnir, stúlkan sem hann er kannski skotinn í og ósýnilegir vinir séu allir af vilja gerðir þá vefst þetta þó nokkuð...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert