Spjall með leikurum og leikstjóra Lúkasar
Laugardaginn, 18. janúar, eftir sýningu á leikritinu Lúkas, munu leikendur og leikstjóri setjast niður með áhorfendum og ræða leikritið. Sýningin hefst kl. 20.00 en verður lokið um 21.30. Þá munu Stefán Hallur Stefánsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir og Friðrik Friðriksson, sem fara með hlutverk í leikritinu, og Marta Nordal, leikstjóri, setjast niður á kaffihúsi Tjarnarbíós og ræða við áhorfendur og aðra gesti um sýninguna. Þau munu svara spurningum, sem áhorfendur kunna að hafa, og segja frá sinni upplifun af verkinu. Leikritið Lúkas eftir Guðmund Steinsson var frumsýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu þann 28. desember síðastliðinn og hlaut mikið lof gagnrýnenda...
Read More


