Author: lensherra

Leikfélag Kópavogs frumsýnir stórvirkið Þrjár systur

Liðsmenn Leikfélags Kópavogs hafa keppst við undanfarnar vikur og nú hillir undir að árangur erfiðisins líti dagsins ljós því næstkomandi föstudag, 31. janúar, frumsýnir félagið Þrjár systur eftir Anton Tsjekhov í Leikhúsinu við Funalind. Er þetta viðamesta sýning félagsins í húsinu. Um 15 leikarar taka þátt í sýningunni en auk þeirra leggja fjöldamargir hönd á plóg. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson sem vakið hefur mikla athygli á síðustu árum fyrir vandaðar og áleitnar sýningar, síðast Stóru börnin og þar áður Hvörf um Guðmundar og Geirfinnsmál. Þrjár systur telst löngu orðið klassískt verk, það er skrifað snemma á síðustu öld en...

Read More

Halaleikhópurinn frumsýnir Sambýlinga

Þann 25. janúar frumsýnir Halaleikhópurinn leikrit eftir ameríska leikskáldið Tom Griffin sem heitir á frummálinu The boys next door, en í staðfærðri þýðingu nefnist Sambýlingar. Þýðinguna gerði Oddur Bjarni Þorkelsson en hann er jafnframt leikstjóri verkins. Sýnt er í Halanum að Hátúni 12. Verkið fjallar um fjóra menn sem eru misjafnlega staddir í andlegum þroska og  búa saman í íbúð. Þeir sjá um sig að nokkru leyti sjálfir, en umsjónarmaðurinn Þór lítur til með þeim og sér um að allt gangi vel. Við fáum að fylgjast með þeim tækla hið daglega líf, sem getur reynst ansi snúið og niðurstaðan...

Read More

Óskasteinar frumsýnt á Nýja sviðinu

Föstudaginn 31. janúar kl. 20 frumsýnir Borgarleikhúsið Óskasteina á Nýja sviði Borgarleikhússins. Ragnar Bragason er mættur aftur til leiks eftir velgengni Gullregns og er hér höfundur og leikstjóri á verki sem fjallar á kómískan hátt um misheppnaða íslenska krimma. Hér er á ferðinni sami hópur listrænna stjórnenda og færði okkur Gullregn á síðasta leikári. Sagan Illa skipulagt rán í smábæ misheppnast hrapallega. Dæmigert íslenskt klúður. Á flóttanum leita ræningjarnir skjóls í mannlausum leikskóla og bíða fjórða félagans sem er horfinn á bílnum. Hópurinn hefur tekið gísl á flóttanum, eldri konu sem varð vitni að ráninu. Fram eftir nóttu stytta...

Read More

Horn á höfði sýnt áfram í Tjarnarbíói

Barnasýningin Horn á Höfði verður sýnd áfram í vor. Til stóð að hætta sýningum um áramót vegna skorts á leikmyndageymsluplássi í Tjarnarbíó – en úr því hefur verið bætt og þessi sívinsæla barnasýning mun því halda áfram fram á vor. Búið er að sýna 60 sýningar allt í allt og á næstu sýningu, þann 26. janúar, verður 7000. gesturinn heiðraður og leystur út með gjöfum. Sýningin var upphaflega frumsýnd í Grindavík 2009 en hún var valin Barnasýning ársins 2010 á Grímunni og var svo sýnd í Borgarleikhúsinu sama haust. Sýningin hlaut einróma lof en Horn á höfði er fjörleg...

Read More

Öll Gerfiaugnahár á Útsölu!

Seljum öll Grimas gerfiaugnahár á helmings afslætti út janúar. 27 tegundir í boði af öllum stærðum og gerðum á 750.- kr. stk. – kostuðu áður 1.500.-. Lím fylgir örfáum tegundum en hægt er að panta það sérstaklega. DUO lím, 14 gr. túba kostar 2.680.- og Kryolan lím, 4 gr. kostar 1.000.-. Vörurnar má skoða hér og þar sjáið þið einnig númer hverrar tegundar sem þið skuluð nota ef þið viljið fá sent í pósti. Gerið góð kaup í Leikhúsbúð Bandalags ísl. leikfélaga að Kleppsmýrarvegi 8, 104 Reykjavík. Netfangið er...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert