Author: lensherra

Leikfélag Selfoss æfir Bróðir minn Ljónshjarta

Nú standa yfir æfingar á leikritinu Bróðir minn Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren hjá Leikfélagi Selfoss. Verkið þarf vart að kynna fyrir fólki en þetta er ein magnaðasta saga höfundarins. Leikstjóri verksins er Sigrún Valbergsdóttir. Stefnt er að frumsýningu 21. febrúar næstkomandi, sýningar verða í Litla leikhúsinu við Sigtún en miðaverð auglýst þegar nær dregur frumsýningu. Bræðurnir Karl og Jónatan hittast aftur eftir stutta jarðneksa dvöl í landinu Nangijala, þar sem sögur eru sagðar við varðeldana. Lífið í Kirsuberjadalnum mótast af grimma Riddaranum Þengli, sem ásamt eldspúandi drekanum Kötlu ræður þar ríkjum og valda þau skelfingu hvar sem þau koma....

Read More

Leikfélag Fjallabyggðar æfir nýtt verk eftir Guðmund Ólafsson

Nú eru æfingar hafnar á fyrsta verki Leikfélags Fjallabyggðar, en Leikfélag Ólafsfjarðar og Leikfélag Siglufjarðar sameinuðust formlega í Leikfélag Fjallabyggðar 12. júlí 2013. Áður unnu félögin saman af mikilli prýði að uppsetningu á verkinu Stöngin inn! sem var samið og leikstýrt af Guðmundi Ólafssyni, en félögin enduðu á fjölum Þjóðleikhússins með þá sýningu. Síðastliðinn mánudag, þann 27. janúar 2014, var kynningarfundur á nýju verki sem Leikfélag Fjallabyggðar er að fara að setja á svið. Guðmundur Ólafsson er kominn aftur í Fjallabyggðina og mætti á fundinn með sjóðheitt frumsamið handrit sem hann ætlar að leikstýra. Gummi Fjólu, eins og hann...

Read More

Leikfélag Kópavogs frumsýnir stórvirkið Þrjár systur

Liðsmenn Leikfélags Kópavogs hafa keppst við undanfarnar vikur og nú hillir undir að árangur erfiðisins líti dagsins ljós því næstkomandi föstudag, 31. janúar, frumsýnir félagið Þrjár systur eftir Anton Tsjekhov í Leikhúsinu við Funalind. Er þetta viðamesta sýning félagsins í húsinu. Um 15 leikarar taka þátt í sýningunni en auk þeirra leggja fjöldamargir hönd á plóg. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson sem vakið hefur mikla athygli á síðustu árum fyrir vandaðar og áleitnar sýningar, síðast Stóru börnin og þar áður Hvörf um Guðmundar og Geirfinnsmál. Þrjár systur telst löngu orðið klassískt verk, það er skrifað snemma á síðustu öld en...

Read More

Halaleikhópurinn frumsýnir Sambýlinga

Þann 25. janúar frumsýnir Halaleikhópurinn leikrit eftir ameríska leikskáldið Tom Griffin sem heitir á frummálinu The boys next door, en í staðfærðri þýðingu nefnist Sambýlingar. Þýðinguna gerði Oddur Bjarni Þorkelsson en hann er jafnframt leikstjóri verkins. Sýnt er í Halanum að Hátúni 12. Verkið fjallar um fjóra menn sem eru misjafnlega staddir í andlegum þroska og  búa saman í íbúð. Þeir sjá um sig að nokkru leyti sjálfir, en umsjónarmaðurinn Þór lítur til með þeim og sér um að allt gangi vel. Við fáum að fylgjast með þeim tækla hið daglega líf, sem getur reynst ansi snúið og niðurstaðan...

Read More

Óskasteinar frumsýnt á Nýja sviðinu

Föstudaginn 31. janúar kl. 20 frumsýnir Borgarleikhúsið Óskasteina á Nýja sviði Borgarleikhússins. Ragnar Bragason er mættur aftur til leiks eftir velgengni Gullregns og er hér höfundur og leikstjóri á verki sem fjallar á kómískan hátt um misheppnaða íslenska krimma. Hér er á ferðinni sami hópur listrænna stjórnenda og færði okkur Gullregn á síðasta leikári. Sagan Illa skipulagt rán í smábæ misheppnast hrapallega. Dæmigert íslenskt klúður. Á flóttanum leita ræningjarnir skjóls í mannlausum leikskóla og bíða fjórða félagans sem er horfinn á bílnum. Hópurinn hefur tekið gísl á flóttanum, eldri konu sem varð vitni að ráninu. Fram eftir nóttu stytta...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert