Anna á Stóru-Borg í fyrsta sinn á fjalirnar
Leikfélag Austur-Eyfellinga sýnir frumsamda leikgerð eftir skáldsögu Jóns Trausta um Austur-Eyfellinginn Önnu Vigfúsdóttur í Stóru-Borg. Margrét Tryggvadóttir leikskólakennari á Hvolsvelli skrifar leikgerðina og leikstjóri er Sveinn Óskar Ásbjörnsson. Þátttakendur eru á þriðja tug. Sýningar verða í félagsheimilinu Heimalandi undir fjöllunum. Frumsýning er fyrirhuguð í byrjun apríl. Með titilhlutverkið fer Þórunn Ólafsdóttir og bróður hennar, Pál Vigfússon lögmann á Hlíðarenda, leikur Bjarni Böðvarsson. Anna Vigfúsdóttir var fædd í byrjun 16. aldar og dó árið 1571. Hún var hefðarkona en þekktust fyrir samband sitt við alþýðupiltinn Hjalta Magnússon og langvarandi stríð við lögmanninn bróður sinn af þeim sökum. Siðaskiptin koma þar...
Read More


