Author: lensherra

Leikfélag Hafnarfjarðar kynnir Hið vikulega

Næstkomandi laugardag, þann 15. mars, mun Leikfélag Hafnarfjarðar hrinda af stað vorverkefni sínu. Það ber hið virðulega heiti Hið Vikulega, þar sem æfð verða upp og sýnd nokkur stuttverk í hverri viku í fjórar vikur alls, sjö til tíu verk í hvert sinn. Félagar í Höfundasmiðju leikfélagsins situr sveitt þessa dagana við að skrifa verkin sem sett verða upp. Þeir sem áhuga hafa á að vera með í þessu verkefni, leikarar, leikstjórar eða annað, endilega hafið samband á leikfelag@gmail.com eða einfaldlega mætið í Gaflaraleikhúsið á laugardaginn næstkomandi kl. 10.00. Hægt er að taka þátt allar fjórar vikurnar, eða einhverja...

Read More

Leikfélag Hofsóss æfir Blúndur og blásýru

Æfingar eru nú í fullum gangi hjá Leikfélagi Hofsóss á bandaríska gamanleiknum Blúndur og blásýra eftir Joseph Kesselring í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Sýnt verður í félagsheimilinu Höfðaborg og verður frumsýning þann 4. apríl. Alls taka 11 leikendur þátt í sýningunni og leikstjóri er Ármann Guðmundsson. Leikritið fjallar um leiklistargagnrýnanda sem kemst að því sér til mikillar skelfingar tvær eldri frænkur hans hafa stundað það af góðmennsku sinni að eitra fyrir einmanna eldri mönnum og jarða þá síðan í kjallaranum hjá sér. Til að flækja málin er hann nýbúinn að biðja unnustu sinnar þegar hann kemst að þessu auk...

Read More

Uppsprettan N°2 auglýsir eftir handritum

Uppsprettan N°2 er að leita eftir handritum sem aldrei hafa verið flutt á sviði áður. Þau mega vera mest 8 blaðsíður að lengd, eða 8 blaðsíðna heilsteypt atriði. Því miður eru einleikir ekki leyfðir og hver höfundur má einungis senda inn eitt handrit. Engar aðrar kröfur eru gerðar. Búið er að mynda nefnd af reyndu leikhúsfólki sem mun lesa handritin og velja svo úr þau þrjú handrit sem þeim þykir best, sem verða þá sett upp af Uppsprettunni í Tjarnarbíói þann 7. apríl næstkomandi. Handritin verða send til nefndarinnar án þess að höfundar verði nafngreindir, en hinsvegar verða höfundar...

Read More

Líf mitt í kassanum, frumsýning föstudag

Föstudaginn 14. mars mun Leikfélag Mosfellssveitar frumsýna nýtt gamanleikrit sem nefnist Líf mitt í kassanum. Leikstjóri verksins er Jóel Sæmundsson og höfundur er Hrafnkell Stefánsson, sem  meðal annars er handritshöfundur bíómyndanna Kurteist fólk og Borgríki 1 og 2. Alls eru leikarar 7 talsins. Aðalpersóna leikritsins er Nonni sem býr með fyrrverandi kærustu sinni og vini sínum. Verkið fjallar um samlíf og samskipti þeirra vina. Þegar fer að halla undan hjá Nonna veit hann ekki alveg hvað er í gangi eða hvernig hann eigi að bregðast við því, en hinir virðast ekki vera alveg á sömu nótum. Miðapantanir eru í síma 566...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert