Anna frá Stóru Borg – Saga af kvenskörungi
Leikfélag Austur- EyfellingaAnna í Stóru-Borg í leikgerð Margrétar TryggvadótturLeikstjóri: Sveinn Óskar Ásbjörnsson Það ríkti sannarlega mikil eftirvænting meðal áhorfenda í Heimalandi undir Eyjafjöllum síðastliðinn föstudag, enda voru þeir mættir á frumsýningu á leikritinu Anna í Stóru-Borg. Leikrit sem byggir á sögu sem Jón Trausti gerði ódauðlega í bók sinni Anna frá Stóru-Borg. Sögusviðið eru Eyjafjöllin og því ekki nema von að áhorfendur væru spenntir. Leikritið gerist á 16. öld og hefst á því að vinnumenn á bænum Stóru-Borg eru að atast í smalamanninum Hjalta og mana hann til að leggjast í sæng húsfreyjunnar Önnu, að launum á hann að...
Read More


