Author: lensherra

Eldklerkurinn snýr aftur

Til að róa huga borgarbúa í ljósi eldsumbrota á miðhálendinu mun Eldklerkurinn snúa aftur í Tjarnarbíó í október. Eldklerkurinn er einleikur um séra Jón Steingrímsson og Skaftárelda, í uppsetningu Möguleikhússins. Leikritið var sýnt í Hallgrímskirkju og Tjarnarbíói síðasta vetur og naut mikilla vinsælda. Í framhaldinu ferðaðist Möguleikhúsið með verkið um landið og sýndi víða. Verkið verður aðeins sýnt tvisvar að þessu sinni, 9. og 19. október. Jón Steingrímsson er kunnastur fyrir eldmessuna er hann flutti í miðjum Skaftáreldum, en hver var hann, hvaðan kom hann og hver urðu örlög hans? Hér er sögð saga frá 18. öld af góðum bónda, lækni og...

Read More

Námskeið fyrir innflytjendur

  Á leikárinu 2014 – 2015 mun sviðslistahópurinn við og við standa fyrir leiklistarnámskeiði í Borgarleikhúsinu. Kennsla fer fram á ensku en lögð er áhersla á tjáningu án orða og er fólk af erlendum uppruna, gestir og innflytjendur, sérstaklega velkomið.   Fyrir áramót er námskeiðið með hefðbundnu sniði þar sem boðið er upp á æfingar og verkefni en útgangspunktur við og við er að þessu sinni spurningin um hvort hægt sé að hrista af sér samfélagsleg og persónuleg hegðunarmynstur. Eftir áramót verða þessar hugmyndir þróaðar áfram með það fyrir augum að setja þær á svið og bjóða áhorfendum að...

Read More

Umbreyting, tvær aukasýningar

Bernd Ogrodnik brúðulistamaður hefur farið víða um heim með sýningu sína Umbreytingu eftir að hún var sýnd hér á landi við frábærar viðtökur á Listahátíð árið 2006. Nú er tækifæri til að sjá sýninguna áður en hún heldur í heimsreisu!! Bernd hefur farið víða um heim með sýninguna frá 2006. Mikið hefur verið spurt eftir sýningunni og fólki hefur verið tíðrætt um þessa einstöku, töfrandi og skemmtilegu sýningu. Nú gefst einstakt tækifæri á að bera þessa sýningu augum en hún verður sýnd næstu tvær helgar í Þjóðleikhúsinu.   Eingöngu verður um þessa tvo sýningardaga að ræða og því um...

Read More

Leikfélag Sauðárkróks sýnir Emil í Kattholti

Í ár eru 30 ár síðan Leikfélag Sauðárkróks sýndi fyrst barnaleikrit, en í desember árið 1984 setti félagið upp Galdrakarlinn í Oz. Frá árinu 2000 hafa barnasýningar verið á dagskrá hjá félaginu að hausti til. Á þessu hausti setur félagið upp Emil í Kattholti. Strákhnokkinn Emil er kunnur fyrir uppátæki sín og iðulega sendur í smíðaskemmuna þar sem hann tálgar spýtukall fyrir hvert skammarstrik sem hann gerir. En hann er líka góður og reynir t.d. eftir bestu getu að losa Línu við tannpínuna. Ævintýri Emils eftir Astrid Lindgren eru kunn og voru fyrst sett á svið á Íslandi árið...

Read More

Ronja í Mosfellsbæ

Leikfélag Mosfellssveitar frumsýndi söngleikinn Ronja ræningjadóttir þann 27. september s.l. Sagan er eftir Astrid Lindgren, þýðandi er Þorleifur Hauksson og tónlist er eftir ýmsa aðila og einnig frumsamin. Leikstjóri er Agnes Wild, tónlistarstjóri er Sigrún Harðardóttir, leikmynd og búninga sér Eva Björg Harðardóttir um.  Sagan af Ronju Ræningjadóttur gerist í Matthíasarskógi þar sem ræningjaforinginn Matthías faðir Ronju ræður ríkjum. Ægileg elding klífur Matthíasarkastalann í tvennt nóttina sem Ronja fæðist og Helvítisgjáin verður til. Ronja er augasteinn og eftirlæti foreldra sinna og ræningjaflokksins. Þegar hún vex úr grasi áttar hún sig á því að faðir hennar, sem hún elskar mest...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert