Leikfélag Kópavogs frumsýnir Elskhugann
Leikfélag Kópavogs frumsýnir Elskhugann eftir Harold Pinter sunnudaginn 26. okt. kl. 20.00. Harold Pinter er eitt af áhrifamestu leikskáldum samtímans og vann Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2005. Eins og mörg verka hans er Elskhuginn margslungið verk. Það fjallar um samband hjóna sem lifa óvenjulegu hjónabandi svo ekki sé meira sagt og hefur af sumum verið lýst sem dramatískri kómedíu. Örn Alexandersson leikstýrir og Arnfinnur Daníelsson og Anna Margrét Pálsdóttir leika. Aðeins 5 sýningar verða á leikritinu. Aðrir sem taka þátt eru Sigrún Tryggvadóttir aðstoðarleikstjóri, Skúli Rúnar Hilmarsson sem hannar lýsingu, Þorleifur Eggertsson sem sér um leikmynd og Hörður Sigurðarson...
Read More


