Útlenski drengurinn í Tjarnarbíói
Útlenski drengurinn er gamanleikur með alvarlegum undirtóni fyrir stálpaða krakka sem fullorðna. Dóri DNA leikur Dóra litla sem er vinsælasti strákurinn í bekknum þangað til hann er látinn taka svokallað Pítsa próf sem snýr öllu lífi hans umsvifalaust á hvolf. Hann er sviptur grundvallarmannréttindum og látinn bíða örlaga sinna innilokaður í myrkvaðri skólastofu. Verkið veltir upp spurningum um ríkisfang, einelti og þá tilfinningu að upplifa sig utangarðs. Uppistandarinn og leikhúsmaðurinn Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, leikur sitt fyrsta stóra hlutverk á sviði íÚtlenska drengnum eftir Þórarinn Leifsson í Tjarnarbíó í haust. Það er leikhópurinn Glenna undir stjórn Vigdísar Jakobsdóttur sem setur verkið á svið. Frumsýning...
Read More


