Author: lensherra

Siðlaus, óþolandi og skemmtileg Arnarnesfjölskylda

Leikfélag ÖlfussEnginn með SteindóriHöfundur: Nína Björk JónsdóttirLeikstjóri: F. Elli Hafliðason Nýjasta stykki Leikfélag Ölfuss er tilþrifamikið verk og ærslafullt. Raunar svo mjög að framan af var undirrituð full efasemda um ágæti þessa. Aðalleikarinn Erla Dan Jónsdóttir hélt uppi fjöri á fjölunum sem oft og einatt keyrðu langt úr hófi. En þegar líður á sýninguna rennur upp fyrir áhorfandanum að Enginn með Steindóri er meira en venjulegt ærslaverk. Það er í því innistæða og táknmyndir og hér klæðir hvort annað, ærslin og ólíkindin.   Við erum stödd í villu á Arnarnesinu þar sem hátt standandi miðaldra borgaraleg hjón taka á...

Read More

Ragnheiður snýr aftur í desember

Óperan Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson snýr aftur á svið Íslensku óperunnar í desember, eftir mikla sigurgöngu síðastliðið vor. Alls urðu sýningar á óperunni þrettán talsins í Eldborg í Hörpu og komust færri að en vildu. Sýningin hlaut tíu tilnefningar til Grímunnar og var í kjölfarið valin Sýning ársins 2014, auk þess sem Gunnar Þórðarson hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem tónhöfundur ársins fyrir verkið á þessu ári. Ragnheiður er sannkölluð ástar- og örlagasaga sem segja má að hafi snert dýpri streng í brjósti þjóðarinnar en flestir aðrir atburðir úr Íslandssögunni. Alls taka hátt í eitt hundrað listamenn þátt...

Read More

Aukasýning á Róðaríi

Leiksýningin Róðarí hefur fengið góðar móttökur og því hefur verið bætt við einni aukasýningu, en sú verður sú síðasta á leikritinu að þessu sinni. Sýningin verður í Tjarnarbíói laugardaginn 8. nóvember, kl. 20:00. Um verkið Fjögur systkini á miðjum aldri og móðir þeirra neyðast til að hittast þegar ein systirin veikist og þarf á hjálp að halda. Samheldni er ekki þeirra sterkasta hlið. Það er því þrautin þyngri að þurfa í sameiningu að ráða fram úr málum. Systkinin telja sig öll hafa fundið sér stað í tilverunni óháð hvert öðru. Stóra spurningin er hver eigi að axla ábyrgð á...

Read More

Bláskjár á ensku í Borgarleikhúsinu

Borgarleikhúsið fetar í forspor erlendra leikhúsa með því að sinna enskumælandi áhorfendum með textuðum sýningum. Þriðjudaginn 11. nóv verður sýningin Bláskjár þýddur á enskan texta sem varpað verður á vegg leikmyndar. Bláskjár Tyrfing Tyrfingssonar var frumsýnt á síðasta leikári og hefur sannarlega slegið í gegn því margar aukasýningar hafa bæst við. Bláskjár er íslenskt gamandrama, með súrum keim, og fjallar um einlæga löngun tveggja systkina í Kópavogi (skammt frá Hamraborg) til að endurnýta sig og byrja lífið upp á nýtt. Tyrfingur er eitt efnilegasta leikáld okkar tíma. Hann gegnir í ár stöðu leikskálds Borgarleikhússins, en forverar hans í því...

Read More

Elskhugi á ferð í Kópavogi

Leikfélag KópavogsElskhuginn eftir Harold PinterÞýðing Ingunn ÁsdísardóttirLeikstjórn Örn Alexandersson Það var húsfyllir í sal Leikfélags Kópavogs þegar ég mætti til leiks 30. október síðastliðinn á aðra sýningu á leikritinu Elskhuganum eftir nóbelsverðlaunahöfundinn Harold Pinter. Þetta er stutt leikrit sem fjallar um ástir samlyndra hjóna, semsagt afar ófrumlegt og lítt áhugavert efni en sett fram á frumlegan og áhugaverðan hátt enda er ástarlíf hjónakornanna fremur óvenjulegt. Leikritið er skrifað snemma á ferli skáldsins eða árið 1963. Ingunn Ásdísardóttir þýddi það á íslensku á vegum Alþýðuleikhússins árið 1988 og leikstýrði því á sínum tíma. Síðan hefur það ekki verið sýnt á...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert