Author: lensherra

Lokunartími um hátíðarnar

Skrifstofa Bandalags íslenskra leikfélaga og Leikhúsbúðin verða lokaðar frá og með mánudeginum 22. desember. Við opnum aftur mánudaginn 5. janúar. Í Leikhúsbúðinni færðu margar sniðugar jólagjafir handa fólki sem er áhugasamt um förðun og gerfi alls konar. Þið getið skoðað vörulistann...

Read More

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Kryolan Concealer Circle, hyljarar í 6 lita 40 gr. dósum, framleiddir í mörgum mismunandi samsetnngum. Hyljararnir eru mjög þekjandi og eru notaðir til að hylja bauga, bólur og önnur lýti á húð fyrir förðun. Dósin kostar kr. 5.700.- Leikhúsbúiðn er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is   Hér að neðan eru þær litasamsetningar sem framleiddar eru, núna eigum við á lager númer 1, 2, 3, 4 og 6 (ekki á mynd en mjög svipað nr. 5). Innihaldslýsing og nánari upplýsingar:...

Read More

Skráningar hafnar í Leiklistarskóla LA

Skráningar eru hafnar í Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar vegna vorannar. Það er einvalalið kennara sem mun starfa við skólann og ásamt hinni reglubundnu kennslu munu nemendurnir kíkja á æfingar á uppsetningu Lísu í Undralandi og vera í návígi við listamennina sem að sýningunni koma. Kennarar verða : Benedikt Karl Gröndal, leikari, Brogan Davison, danshöfundur, Margrét Sverrisdóttir, leikkona, Pétur Ármannsson, leikari og Sólveig Guðmundsdóttir, leikkona. Markmið skólans er að gefa ungu fólki tækifæri til að þroska og þróa aðferðir til að beisla sköpunarkraft sinn og beina honum í listrænan farveg. Áhersla er á sviðslistir í sem víðastri merkingu. Umsóknarfrestur til að sækja um nám...

Read More

Jóladagatal Leikfélags Hólmavíkur

Leikfélag Hólmavíkur birtir jólaleikritið Jóladagatalið í útvarps/netútgáfu núna fyrir jólin. Stykkið var upphaflega samið og sýnt fyrir jólin 1989.  Þættirnir eru 13 og koma eins og jólasveinarnir, einn á dag á vef Leikfélagsins næstu daga....

Read More

Æfingar hefjast á Billy Elliot

Í vikunni hófust æfingar á stórsýningunni Billy Elliot. Sýningin er sú stærsta sem Borgarleikhúsið hefur sett upp en 68 listamenn taka þátt í henni, það eru 33 börn, 24 fullorðnir og 11 hljómsveitarmeðlimir. Frumsýning er áætluð 5. mars. Þrír glæsilegir ungir dansarar deila aðalhlutverkinu og hafa verið í hörðu dansnámi síðastliðna 8 mánuði undir stjórn breskra kennara. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson.   Söngleikurinn um Billy Elliot var frumsýndur á West End í London árið 2005 og hefur vakið gríðarlega athygli um víða veröld. Sýningin hlaut mikið lof og fjölda verðlauna og er nú loksins komin í Borgarleikhúsið undir...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert