Námskeið fyrir innflytjendur
Frá og með 7. janúar heldur listahópurinn „við og við“ leiklistarnámskeið í samstarfi við Borgarleikhúsið. Námskeiðið er á miðvikudagskvöldum og er opið öllum en fer fram á ensku og hentar því innflytjendum vel og öðrum sem ekki hafa íslensku að móðurmáli. Engrar reynslu er krafist nema brennandi áhuga á leiklist og sköpun en fyrsti tíminn verður opinn fyrir þá sem hafa áhuga á að prófa. Á námskeiðunum verður unnið að því að setja upp sviðsverk sem flutt verður á opnu kvöldi í Borgarleikhúsinu í apríl. Nánari upplýsingar er að finna á https://www.facebook.com/vidogvid en skráning fer fram í gegnum vidovidklubburinn@gmail.com....
Read More


