Frábærlega skemmtilegur farsi
Leikfélag SelfossBót og betrun eftir Michael CooneyLeikstjóri: Jón St. Kristjánsson. Þýðandi: Hörður Sigurðarson Bót og betrun er frábærlega skemmtilegur farsi; vel skrifaður og mjög vel þýddur. Undirrituð fór á frumsýningu, byrjaði fljótlega að gráta úr hlátri og hélt því áfram nokkurn veginn til loka. Það er svo gaman að sjá vel smurðan farsa þar sem allt gengur upp og þrælvant fólk í flestum hlutverkum, að ekki sé talað um þjálfaðan leikstjórann sem stýrir breskum farsa hjá Selfyssingum í þriðja sinn nú. Hljóðmyndin var vel gerð, lýsing einnig og heildarmyndin snurðulaus. Farsar eru með vandasömustu uppfærslunum, það verður að...
Read More


