Author: lensherra

Minnisvarði í Tjarnarbíói

Leikhópurinn 16 elskendur kynna nýtt verk um sjónarspilið, ástina og samfélög mannanna. Jörðin er sléttari en billjardkúla. Minnisvarði er nýtt verk eftir 16 elskendur þar sem tekist er á við mikilvægi sjónarspilsins innan nútíma samfélags.Á undanförnum áratug hefur hversdagslegt líf einstaklingsins verið gert að stórfenglegu sjónarspili og rík áhersla lögð á möguleika hvers og eins á að skara fram úr á sínum eigin hversdagslegu forsendum. Í sköpunarferli Minnisvarða hafa 16 elskendur kannað hvar uppsprettu þessarar áherslu á sjónarspilið er að finna og hvernig á því stendur að það falli einstaklega vel að ríkjandi samfélagsskipan hins vestræna heims. Verkið tekst á við...

Read More

Æðisleg uppsetning

Leikfélag KópavogsÓþarfa offarsi eftir Paul Slade SmithLeikstjórn: Hörður Sigurðarson. Þýðandi: Hörður Sigurðarson Óþarfa offarsi er farsi sem hefur fest sig í sessi meðal betri farsa í leikhúslífi enskumælandi þjóða. Hann hefur verið settur upp 155 sinnum, þá aðallega sitt hvoru megin við atlantshafið. Einu löndin sem verkið hefur verið sett upp í, sem hafa ekki ensku að móðurmáli, eru Singapúr og Ísland. Verkið er hnyttinn, hraður og vel skrifaður farsi. Tekst Herði Sigurðarsyni einkar vel til í þýðingu á verkinu.   Öll umgjörð verksins var vel úr garði gerð. Hljóðmynd var snurðulaus, það sama má segja um ljós. Búningar pössuðu...

Read More

Einn kosss enn .. frumsýning 7. mars

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir  laugardaginn 7. Mars kl 20.00 leikritið Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan. Leikritið er eftir Marc Camoletti en leikgerð og þýðing eftir Sigurð Atlason. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir. Leikritið fjallar um Jónatan sem býr með þremur flugfreyjum, þeim Herdísi, Hafdísi og Hjördísi,  sem allar vinna hjá sitthvoru flugfélaginu og koma heim á mismunandi tímum  og vita ekki hver af annari.  Á heimilinu er einnig heimilishjálpin Dísa. Hlutirnir fara svo að flækjast þegar Róbert vinur Jónatans kemur í heimsókn og fær að búa hjá honum nokkra daga. Leikritið er ærslafullur farsi þar sem einn...

Read More

Segulsvið í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 12. mars í Kassanum nýtt leikrit eftir Sigurð Pálsson í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Ung kona áttar sig á því að það sér hana enginn í erfidrykkju eiginmannsins sem drap sig úr dugnaði. Hún hefur alltaf verið bakhliðin á eiginmanninum og veit ekki lengur hver hún er. Þegar hún ráfar út úr erfidrykkjunni finnur hún að hún hefur heldur ekkert aðdráttarafl lengur. Það sem meira er – vegfarendum finnst hún beinlínis fráhrindandi, öllum nema draumlyndum ungum manni sem dregst að henni eins og naglapakki að segulstáli. Nokkrum mánuðum síðar, eftir aðra sára lífsreynslu, reikar hún svefnlaus um...

Read More

Billy Elliot í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 6. mars kl 19.00 frumsýnir Borgarleikhúsið stærstu sýningu sem sett hefur verið upp í húsinu en 69 listamenn taka þátt í henni, það eru 34 börn, 24 fullorðnir og 11 hljómsveitarmeðlimir. Þrír glæsilegir ungir dansarar deila aðalhlutverkinu og leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson. Billy er á leiðinni í boxtíma þegar hann lendir fyrir slysni á dansæfingu. Hann byrjar að hreyfa sig í takt við tónlistina og uppgötvar sér til furðu að þetta er ekki einungis það skemmtilegasta sem hann hefur gert heldur er hann einfaldlega fæddur til að dansa. Billy á sér draum sem samræmist ekki hugmyndum fullorðna...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert