Author: lensherra

Arty Hour #13 í Tjarnarbíói

Listastundin í Tjarnarbíó: verk í vinnslu og nýjar sýningar kynntar Nú er komið að því! Leikárið er farið af stað af krafti og því ekki seinna vænna en að opna dyrnar og skyggnast á hvað listamenn Tjarnarbíós eru að skapa og skipuleggja. Á Arty Hour eru kynnt verk sem verið er að setja upp í húsinu og ýmislegt annað forvitnilegt sem er að ske. Á þrettánda slíka viðburðinum, miðvikudaginn 23. september kl. 20:00, koma eftirtaldir fram: – Marta Nordal kynnir nýja verkið sitt, Nazanin, sem var frumsýnt á Lókal á dögunum og er nú í sýningum – Tinna Hrafnsdóttir...

Read More

65 ára afmælishátíð!

Við ætlum að blása í lúðra og efna til handritasamkeppni og leiklistargjörnings um allt land í tilefni af 65 ára afmæli Bandalagsins 2015, en það var stofnað 12. ágúst 1950. Þema samkeppninnar er afmæli og lykilorð sem hafa má í huga eru: 65 – áhugaleikari – veisla – tími. Miðað er við að tímalengd sé ekki meira en 15 mínútur (ca. 8 bls.) Tímarammi til skila verður stuttur, enda um stuttverk að ræða. Skilafrestur er til 15. október. Sérstök nefnd mun fara yfir verkin og velja þrjú þeirra í verkefnið. Þessi þrjú verk verða svo send út til allra aðildarfélaga...

Read More

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga 2014–15 komið út

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2014–2015 er nú komið á Leiklistarvefinn. Í ritinu eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalags íslenskra leikfélaga og aðildarfélaga þess á síðastliðnu leikári. Að venju prýða ritið margar myndir héðan og þaðan úr starfinu. Hér má nálgast ársritið. Þeir sem vilja fá ársritið útprentað geta pantað það með því að senda póst á info@leiklist.is. Útprentað og gormað kostar ritið 4.000 kr. Pantanir þurfa að hafa borist fyrir 1. október...

Read More

Nazanin í Tjarnarbíói

Nazanin er nýtt sviðslistaverk í leikstjórn Mörtu Nordal um írönsku flóttakonuna Nazanin Askari. „Ég fæddist fyrir 28 árum. Það eru liðin 36 ár síðan íran varð íslamskt ríki, síðan öllum konum var gert að ganga með slæður, ritskoðun komið á og frelsi borgara skert. Fyrir 36 árum breyttist allt í mínu landi. Það sem áður var slæmt, varð einungis verra. Draumar um betra líf eftir byltinguna 1979 urðu að engu.“ Nazanin Askari er ung írönsk kona sem flúði frá Íran aftir Grænu byltinguna sem varð í kjölfar forsetakosninganna árið 2009. Ahmadinejad, þá sitjandi forseti, sigraði í kosningunum en talið...

Read More

Frami í Tjarnarbíói

„Enginn meinar neitt af því enginn þorir því og ef einhver vildi meina eitthvað þá myndi enginn skilja það því allir héldu að hann væri að grínast.“ Frami er nýtt verk eftir Björn Leó Brynjarsson í uppsetningu sviðslistahópsins TAKATAKA. Það var frumsýnt á leiklistarhátíðinni Lókal/Reykjavík Dance Festival á dögunum, en snýr nú aftur í Tjarnarbíó og verður sýnt nokkrum sinnum í september og október. Verkið fjallar um þrá listamanns eftir velgengni í nútímasamfélagi og baráttu hans við sjálfan sig. Hann upplifir sig á skjön við nútímann og nærir biturð sína gagnvart farsælasta listamanni Íslands ásamt því að vera heltekinn...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert