Author: lensherra

Bangsímon á Selfossi

Bangsímon eftir Petre Snickars Leikfélag Selfoss Leikstjóri: Guðfinna Gunnarsdóttir Árni Hjartarson rýnir leiksýningu Þann 31. okt. s.l. frumsýndi Leikfélag Selfoss leikritið Bangsímon eftir finnska leikskáldið og leikarann Petre Snickars sem byggt er á hinum frægu sögum Alans Alexanders Milne um Bangsímon og vini hans frá þriðja áratug 20. aldar. Undirritaður fór á vettvang með konu og barnabarn og sá aðra sýningu verksins, sunnudaginn 1. nóv. kl. 16.00. Þá var ys og þys í litla leikhúsinu við Sigtún á Selfossi. Afar og ömmur, foreldrar og börn og aðrir leikhúsgestir voru að koma sér fyrir. Börnin gátu annað hvort setið á...

Read More

Hið hrekkjarvikulega í Hafnarfirði

Leikfélag Hafnarfjarðar býður nú í tíunda skipti upp á leikhúsveislu undir merkjum Hins vikulega. Að þessu sinni er þemað Hrekkjavaka, enda fer sýningin fram á sjálfu Hrekkjavökukvöldinu, 31. október. Hið vikulega er stuttverkadagskrá sem lýtur ákveðnum lögmálum sem hún dregur nafn sitt af. Höfundar í höfundasmiðju LH fá viku til þess að semja stuttverk sem síðan eru æfð af leikstjórum og leikurum félagsins á einni viku. Stuttverkakvöldin hafa vakið verðskuldaða athygli og verið vel sótt. Boðið er uppá kaffihúsastemningu og veitingar seldar í sal fyrir sýningu og í hléi. Gera má ráð fyrir blóði drifinni dagskrá að þessu sinni...

Read More

Leikfélag Selfoss frumsýnir Bangsímon

Nú er komið að því sem allir krakkar hafa beðið eftir. Leikritið Bangsímon verður frumsýnt hjá Leikfélagi Selfoss laugardaginn 31. október kl. 15:00 í Litla leikhúsinu við Sigtún. Bangsímon er hugljúft og skemmtilegt leikrit fyrir börn á öllum aldri. Það var fyrst sett á svið hjá leikfélaginu fyrir 20 árum síðan og hlökkum við til að kynna næstu kynslóð fyrir Bangsímoni og vinum hans í Hundraðekruskógi. Það er heimakonan Guðfinna Gunnarsdóttir sem leikstýrir leikgerð Peter Snickars en hún var skrifuð eftir hinum ástsælu sögum A.A. Milne sem flestir þekkja og var það Sigríður Karlsdóttir sem þýddi leikritið, en þýðing...

Read More

Á rúmsjó í Kópavogi

Þrír menn eru týndir úti á rúmsjó, skipreika á björgunarbát. Hungrið sverfur að og fljótt verður ljóst að til að einhverjir þeirra komist af þarf að beita róttækum aðferðum. Þeir rökræða sín á milli um hvað þurfi að gera svo einhverjir þeirra komist af umræðan snýst óhjákvæmilega um það hver þeirra er minnst virði. Þannig hefst leikritið Á rúmsjó eftir Sławomir Mrozek sem Leikfélag Kópavogs frumsýndi um helgina í Leikhúsinu. Verkið tilheyrir flokki absúrdverka í leikritun og er beitt rýni á samfélagsgerðina, stéttaskiptingu og hvernig villimennskan getur birst á siðfágaðan hátt. Leikstjóri verksins er Örn Alexandersson en leikarar eru...

Read More

Súrrealískt kaffihús

Einn rjúkandi kaffibolli Leikfélag Ölfuss Leikstjóri: Don Ellione Elín Gunnlaugsdóttir rýnir sýningu Rithöfundur nokkur venur komur sínar á kaffihús og reynir að sækja þar innblástur í skrif sín. Samtöl og uppákomur á kaffihúsinu, sem ber nafnið Einn rjúkandi kaffibolli, rata því mörg hver inn í skrif hans. Þetta er í stórum dráttum efni leikverksins Einn rjúkandi kaffibolli sem Leikfélag Ölfuss hefur sett upp á aflögðum bar í Þorlákshöfn. Verkið er eftir Þorlákshafnarbúann Aðalstein Jóhannsson, en hann leikur jafnframt rithöfundinn í verkinu. Ekki ganga skrifin beint vel hjá blessuðum höfundinum þó margt skemmtilegt fólk heimsæki kaffihúsið og ber þar að...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert