Halaleikhópurinn sýnir Innlit í Stræti
Hlutar úr leikritinu Stræti eftir Jim Cartwright í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar verða sýndir 14. og 15. nóvember kl. 20. Í „Innlit í Stræti“ verða flutt eintöl nokkurra íbúa strætisins þar sem við fáum nasaþef af persónuflóru. Við hittum Skinnið sem er bulla með ofbeldisfulla fortíð en hefur nú snúist til dharma. Prófessorinn, misheppnaður rithöfundur, fjallar um bókina sem aldrei varð til. Þarna býr Valerie, einstæð móðir sem býr við kúgun og heimilisofbeldi og drýgir tekjurnar með betli. Þá birtist Mollý, drottningamóðir transgender heimsins og líf hennar í dag. Jerry, smámunasamur fyrrverandi hermaður sem dagaði uppi einhversstaðar kemur fram. Scullery er svo...
Read More


