Ubbi kóngur sækir um að fara til Monaco 2017
Þann 1. september sl. rann út frestur til að sækja um að fara með íslenska leiksýningu á alþjóðlegu leiklistarhátíðina í Monaco sem haldin verður í ágúst 2017. Tvær umsóknir bárust og skipaði stjórn Bandalagsins því þriggja manna valnefnd sem skilaði af sér þann 10. september. Niðurstaða nefndarinnar er eftirfarandi: Valnefnd vegna alþjóðlegrar leiklistarhátíðar í Mónakó árið 2017 hefur komið saman og komist að sameiginlegri niðurstöðu. Tvö leikfélög sóttu um með leiksýningu á hátíðina: Leikfélag Hafnarfjarðar með Ubba kóng. Höfundur: Alfred Jarry Þýðing: Steingrímur Gauti Kristinsson Tónlist og söngtextar: Eyvindur Karlsson, Þórarinn Eldjárn og Karl Ágúst Úlfsson Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir. Leikfélag Mosfellsbæjar...
Read More


