Author: lensherra

Fjaðrafok / Strange Feathers í Tjarnarbíói

Fjaðrafok er nýtt verk ætlað börnum frá 18 mánaða aldri. Verkið er samstarfsverkefni Bíbí & Blaka og írska sirkúsflokksins Fidget Feet. Þessir hópar sameinast nú í fyrsta sinn og vinna nýja blöndu af loftfimleikum og dansi sérstaklega ætlaða yngstu kynslóðinni. Fjaðrafok fjallar um tvo fuglsunga, en fylgst er með þeim frá því að þeir klekjast út úr egginu sínu og leiðum þeirra til að ná færninni til að fljúga af stað. Fljúgandi dansarar og lifandi tónlist munu bjóða börnum og aðstandendum þeirra upp á óvenjulega og skemmtilega upplifun! Verkið er 35 mínútur að lengd en eftir sýningu fá börnin að kanna rýmið...

Read More

Samlestur á Extravaganza í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 16. september kl. 13.00 verður opinn samlestur á nýju verki Sölku Guðmundsdóttur, Extravaganza. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- og búningahöfundar hugmyndir sínar og fyrir vikið er fyrsti samlestur oft eins konar hátíðarsamkoma. Þetta er upphaf langrar ferðar sem lýkur með pompi og prakt á frumsýningunni.  Allir velkomnir og heitt kaffi á könnunni. Lýdía býr í fyrrum félagsblokk í úthverfi Reykjavíkur sem breytt...

Read More

Nýjar spennandi vörur í Leikhúsbúðinni

Nú nálgast Hrekkjavakan óðfluga og margir örugglega farnir að velta fyrir sér gerfum og aðferðum. Leikhúsbúðin var að fá tvö frábær sett á alveg ótrúlegu verði, annars vegar Sugar Skull Kit og hins vegar Zombie Kit. Settið kostar ekki nema 6.750 kr. stk. Zombie settið inniheldur: Fresh Scratch sultublóð, 15 ml Cine-Wax 10 g 1 Spaði F/X Blóð, 50 ml Liquid Latex, 30 ml Tannlakk Translucent Powder 20 g Spirit Gum (húðlím) 12 ml Cream Color Circle, Black Eye Púðurkvasti 1 Make-up Svampur Taska Sugar Skull settið inniheldur: 2 Make-up Penslar 3 Aquacolor litir, 8 ml Skrautsteinar Supracolor Clown White...

Read More

Snertu mig – ekki!

Nýtt íslenskt leikrit, Snertu mig – ekki! verður frumsýnt föstudaginn 16. september hjá Leikfélagi Kópavogs. Verkið er gamandrama sem fjallar um samband hjóna og vinkonu þeirra eða, eins og vinsælt hefur verið í íslenskum bíómyndum, vandamál miðaldra karlmanns. Snertu mig – ekki! er eftir Örn Alexandersson, en leikstjóri er Sigrún Tryggvadóttir. Örn og Sigrún hafa lengi starfað með Leikfélagi Kópavogs en félagið á 60 ára afmæli á þessu nýhafna leikári. Verkið tekur um klukkustund í flutningi og taka þrír leikarar þátt í sýningunni, þau Anna Margrét Pálsdóttir, Arnfinnur Daníelsson og Guðný Hrönn Sigmundsdóttir. Lýsing er í höndum Skúla Rúnars Hilmarssonar, Hörður...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert