Allt veður er gott veður
Skemmtileg leit að sumrinu í Kópavogi Leitin að sumrinu er nýtt íslenskt barnaleikrit sem frumsýnt var hjá Leikfélagi Kópavogs laugardaginn 12. október. Leikararnir Ástþór Ágústsson, Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson og Magnús Guðmundsson sömdu verkið og leikstýrðu. Leikmynd er unnin af leikhópnum með aðstoð Klæmint Henningsson Isaksen. Um búninga sá Dýrleif Jónsdóttir. Skúli Rúnar Hilmarsson sá um lýsingu. Verkið fjallar um Jón sem elskar sumarið. Hann er truflaður við að njóta sumarblíðunnar þegar árstíðirnar koma hver á fætur annari, trufla hann og rugla í ríminu. Jón, leikinn af Guðmundi Lúðvík Þorvaldssyni, á samtal við alla fulltrúa árstíðanna, haust, vetur, vor og...
Read More


