Author: lensherra

Extravaganza í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 28. október kl. 20:00 frumsýna Borgarleikhúsið og Leikhópurinn Soðið svið verkið Extravaganza á Nýja sviðinu. Um er að ræða nýtt verk eftir Sölku Guðmundsdóttur og leikstjóri er Ragnheiður Skúladóttir.  Lýdía býr í fyrrum félagsblokk í úthverfi Reykjavíkur sem breytt hefur verið í gistirými fyrir ferðamenn. Gegn því að tékka ferðamenn inn og út úr blokkinni og afgreiða í lundabúðinni sem rekin er í sameigninni leyfir fasteignafélagið Porcellus henni að búa þar áfram. Án vitundar Porcellus hefur áhugasagnfræðingurinn Guðbrandur Númi hreiðrað um sig í geymslurými en fer um borgina að næturlagi í leit að pússlum í borgarsöguna. Þegar Porcellus tekur að...

Read More

Skólalagið

Í tilefni 20 ára afmælis Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga 2017 hefur verið ákveðið að efna til samkeppni um skólasöng. Þeir sem vilja taka þátt eru beðnir um að fylla út formið hér að neðan og senda inn fyrir 15. febrúar 2017. Keppendur verða að vera reiðubúnir að sjá um flutning á framlagi sínu á afmælishátíð skólans sem haldinn verður í mars 2017, þar sem nýr skólasöngur verður valinn. Þá er bara að brýna raustina og taka upp tónsprotann. Ekki er búist við minna en stórbrotnum textum og snilldar lagasmíðum. Ég vil skrá mig á Leikstjóralistann á Leiklistarvefnum: Nafn *...

Read More

Sótarar óskast!

Ópera Vestfjarða vinnur nú að uppsetningu hinnar bráðskemmtilegu og ævintýralegu barnaóperu Litli sótarinn. Óperan er eftir Benjamin Britten og er í snilldarþýðingu Reykjavíkurskáldsins Tómasar Guðmundssonar. Í stuttu máli fjallar Litli sótarinn um piltinn Bjart. Sökum fátæktar verða foreldrar hans að selja hann frá sér. Kaupandinn er hinn illkvittni sótari Surtur. Þegar svo sótarinn smái festist í einum reykháfnum taka leikar heldur betur að æsast. Ópera Vestfjarða leitar nú til söngvara á ýmsum aldri, barna jafnt sem fullorðinna til að taka þátt í Litla sótaranum. Til að allir fái að njóta sín sem best hefur verið ákveðið að standa fyrir...

Read More

Stíflan brestur – Stuttverkadagskrá LS og LÖ

Síðasta vor héldu Leikfélag Selfoss og Leikfélag Ölfuss sameiginlegt leikritunarnámskeið. Á námskeiðið mættu 14 upprennandi leikskáld og skrifuðu, lásu og skemmtu sér undir handleiðslu Karls Ágústar Úlfsonar. En leikrit eru ekki rituð til að safna ryki í skúffum og tölvum og því var ákveðið að skella í stuttverkadagskrá og setja nokkur verkanna á svið. Stuttverkin sex sem valin voru til uppsetningar eru fjölbreytt og sýna það glögglega að þó að allur hópurinn hafi oft unnið með sama þema þá voru útkomurnar oft mjög ólíkar. Við fáum að kynnast hinum ýmsu hliðum á mannlegu og jafnvel dýrslegu eðli og skyggnast...

Read More

Vorverkefni Leikfélags Kópavogs – leiksmiðja

Leikfélag Kópavogs boðar til leiksmiðju til undirbúnings uppsetningu á nýju leikverki eftir áramót. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Tilefnið er 60 ára afmæli félagsins á leikárinu. Leiksmiðjan verður haldin mið. 26. og fim. 27. okt. kl. 19.00-22.30 og lau. 29. kl. 9.30-12.00 í Leikhúsinu, Funalind 2 í Kópavogi. Þeir sem áhuga hafa vinsamlegast skráið ykkur hér. Staðfesting mun berast í pósti á uppgefið...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert