Um Leikritasafnið
Um safnið: Leikritasafn BÍL er stærsta safn leikrita á íslensku. Safnið er afrakstur vinnu starfsmanna Bandalags íslenskra leikfélaga í hartnær 70 ár. Reglulega bætast ný leikrit við safnið sem nú telur á fimmta þúsund titla. Handrit að láni: Hægt er að fá rafræn handrit að láni úr safninu gegn hóflegri umsýsluþóknun. Þóknun fyrir 1 handrit […]
Bak við tjöldin á N4

Sjónvarpsstöðin N4 hefur undanfarið ár eða svo sýnt stutta þætti þar sem fræðst er um starfsemi leikfélaganna á Norðurlandi. Nú þegar hafa verið gerðir þættir um Leikfélag Húsavíkur, Freyvangsleikhúsið, Leikfélag Hörgdæla, Leikfélag Dalvíkur og nú síðast Leikdeild UMF Eflingar. Valinkunnum leikarum úr röðum þessara félaga bregður fyrir í þáttunum. Hér má finna tengil á þessa […]
Fullkomið brúðkaup loks á svið

Leikfélag Fljótsdalshéraðs tefldi djarft í haust og hóf æfingar á Fullkomnu brúðkaupi eftir Robin Hawdon. Því miður náðist ekki að frumsýna vegna veirunnar en nú er loks komið að stóru stundinni. Frumsýnt verður laugardaginn 23. janúar kl. 20.00 að Iðavöllum. Það er hinn margreyndi Guðjón Sigvaldason sem leikstýrir verkinu. Brúðkaupsdagurinn er runninn upp. Brúðguminn vaknar með konu […]
Námskeið í leikritun á Selfossi

Leikfélag Selfoss stendur fyrir námskeiði í leikritun nú í janúar. Leiðbeinandi er Karl Ágúst Úlfsson en námskeiðið er ætlað byrjendum og lengra komnum. Fjallað verður um listina að segja sögu á sviði, helstu hugtök í leikritun, svo sem persónusköpun, uppbyggingu og framvindu. Nemendur kynnast aðferðum leikskáldsins og ráðum til að ná flæði í vinnu og […]
Þjóðleikhúsið auglýsir eftir samstarfsverkefnum

Þjóðleikhúsið auglýsir eftir hugmyndum að leiksýningum sem settar yrðu upp í samstarfi leikhússins við leikhópa eða aðra aðila leikárið 2021-2022, í samræmi við 6. grein laga um sviðslistir (165/2019). Þjóðleikhúsið vill efna til frjós og skapandi samstarfs í þeim tilgangi að efla sviðslistir í landinu og auka fjölbreytni í leikhúslandslaginu. Samstarfsverkefni sem valin eru til […]
Jólakveðja frá Bandalaginu

Bandalag íslenskra leikfélaga óskar leiklistarfólki um land allt gleðilegra jóla og þakkar samstarf og vináttu á árinu sem er að líða. Þjónustumiðstöðin verður lokuð 23. des.-6. janúar. Vefverslunin er þó alltaf opin og pantanir eru sendar samdægurs eða næsta virka dag. Með von um kraftmikið og skemmtilegt leiklistarár 2021!
Jólatilboð í Leikhúsbúð

Í Leikhúsbúðinni eru nú í boði einstakir jólapakkar handa upprennandi og núverandi förðunarsnillingum. Pakkarnir innihalda allt sem þörf er á fyrir áhugafólk um förðun, hvort sem er fyrir lengra komna eða þá sem eru að stíga sín fyrstu skref. Hægt er að velja á milli tveggja pakka: Í pakka 1 sem kostar aðeins 7.900 kr. […]
Hvar eru jólasveinarnir?

Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir um þessar mundir spunaverkið Hvar eru jólasveinarnir? Verkið er í þremur þáttum og má sjá á Facebooksíðu LH sem og á YouTube-rás leikfélagsins. Í þriðja þætti fékk LH til liðs við sig félaga sína úr hinum ýmsu leikfélögum víðsvegar að af landinu. Á tímum samkomubanna og fjarlægðarskyldu getur Leppalúði og allt hans hyski […]
Leiklistarhátíð IATA á vefnum

Listin lætur ekki hemja sig og Alþjóðaáhugaleikhúsráðið hélt óvenjulega leiklistarhátíð á vefnum dagana 22.-28. nóvember. Hugmyndin að hátíðinni kom frá rússneska áhugaleikhússambandinu og skipulagið var einnig að mestu í þeirra höndum ásamt CEC, Mið-Evrópusambandinu. Íslensk tenging var þó einnig því Þorgeir Tryggvason leiklistarrýnir með meiru og fyrrum formaður Bandalagsins, var einn af þremur sérfræðingum sem fengnir […]
Viltu skrifa sketsa?

Dóra Jóhannsdóttir, yfirhandritshöfundur Áramótaskaupsins 2017 og 2019 heldur NET-WORKSHOP! Inngang að Sketchaskrifum í desember. Þar kynnir Dóra ýmis hugtök og aðferðir við grínskrif og fer m.a yfir hvernig hún vann sketsa fyrir áramótaskaupið 2017 og 2019. Sketsar verða skoðaðir og greindir. Dóra lærði sketsaskrif hjá UCB í NY og The Second City í Chicago. Námskeiðið […]
Umsókn um styrk vegna Covid-19 tekjutaps
Þú hefur ekki leyfi til að skoða þessa síðu.
Master class í leikstjórn með Yaël Farber

Í hinu alræmda veirustoppi nýtir Þjóðleikhúsið tækifærið og heldur námskeið fyrir leikstjóra. Námskeiðið er í formi tveggja daga Master Class með Yaël Farber sem leikstýrir Framúrskarandi vinkonu í Þjóðleikhúsinu á þessu leikári. Völdum hópi leikstjóra gefst hér einstakt tækifæri til að kynnast og læra af þessum margverðlaunaða leikstjóra sem leikstýrt hefur víða um heim og er […]
Fullkomið brúðkaup á Fljótsdalshéraði

[et_pb_section admin_label=“section“] [et_pb_row admin_label=“row“] [et_pb_column type=“4_4″][et_pb_text admin_label=“Text“]Leikfélag Fljótsdalshéraðs ákvað síðla sumars að taka áhættu og hefja æfingar á leikriti í miðju veirufári. Fyrir valinu varð hinn vinsæli farsi Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon. Hinn margreyndi Guðjón Sigvaldason var ráðinn sem leikstjóri. Guðjón kom austur í september og hafa æfingar gengið vel og Covid-19 ekki truflað þær. Æfingar eru […]
31 dagur af Hrekkjavökuförðun

Ninna Karla Katrínardóttir hefur verið með afar sérstakt verkefni í gangi nú í októbermánuði. Hrekkjavaka nálgast og í tilefni af því hefur Ninna sett á sig nýja og magnað Hrekkjavökuförðun á hverjum degi. Hér að neðan má sjá hreint hina ótrúlegu fjölbreytni og hugmyndaauðgi sem Ninna hefur sýnt það sem af er mánuðinum. Enn er […]
Athyglisverðasta áhugaleiksýningin 2021

Þrátt fyrir mikla óvissu með leikstarf á yfirstandandi leikári, stefnir Þjóðleikhúsið á val á Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins næsta vor. Þjóðleikhúsið hefir verið í samstarfi við Bandalagið í rúma tvo áratugi með vali á leiksýningu úr smiðju áhugaleikfélaganna sem sérstaka athygli vekur. Í kjölfarið hefur viðkomandi félagi verið boðið að sýna í Þjóðleikhúsinu en síðasta vor kom […]
Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2021 – Umsókn
Þú hefur ekki leyfi til að skoða þessa síðu.
Hrekkjavaka í Leikhúsbúðinni

Úrval af vörum í Leikhúsbúðinni til að gera Hrekkjavökuna sem áhrifamesta. Hagkvæm förðunarsett frá Kryolan: Nýtt sett Pumpkin Girl. 18% afsláttur á eldri settum Sugar Skull og Crazy Doll. Blóð, sár, vessar, tár. Woundfiller og Fresh Scratch fyrir blóðeffekta. Fljótandi Latex til að gera sár. Blóð, augnblóð og nuddsár á húð. Tannlakk, skegg, yfirvaraskegg, skeggefni, skallar […]
Covid kæfir leikstarfið

Leikstarf um allt land er í lamasessi vegna Covid. Þau félög sem komu á aðalfund sögðu stuttlega frá stöðu mála hjá sér á fundinum og hér má sjá hvað sagt var, með nokkrum viðbótum og breytingum vegna þess sem gerst hefur síðan fundurinn var haldinn: Leikfélag Mosfellsbæjar stefndi á að frumsýna Stuart litla þegar ósköpin […]
Ársrit BÍL 2020 komið út

Ársrit BÍL fyrir leikárið 2019-20 er komið út. Í því er að finna upplýsingar, tölfræði og ýmsan fróðleik um starfsemi Bandalagsfélaganna á síðasta leikári sem sannarlega var eftirminnilegt fyrir ýmsar sakir. Ársritið er að finna hér í PDF formi: Ársrit – Stakar síður Ársrit – Opnur
Dagbók Önnu Frank aftur á svið

Freyvangsleikhúsið frumsýndi nýja leikgerð á Dagbók Önnu Frank í febrúar á þessu ári en þurfti að hætta sýningum vegna samkomubanns í Covid-19 faraldrinum. Leikfélagið er þó ekki tilbúið að kveðja verkið og býður því upp á nokkrar sýningar á nýju leikári. Verkið verður eingöngu sýnt í október. Jafnframt mun félagið fylgja settum reglum og gildandi takmörkunum varðandi […]
Fundargerð aðalfundar í Kópavogi 19. september 2020
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 2020 – 70. fundur Fundarsetning. Kosning 2ja fundarstjóra og 2ja fundarritara, sem taka þegar til starfa. Lögmæti fundarins kannað. Guðfinna Gunnarsdóttir formaður BÍL, stígur í pontu og setur fund við þessar sérstöku aðstæður. Stungið er upp á Vilborgu Valgarðsdóttur og Önnu Margréti Pálksdóttur sem fundarstjórum og Jónheiði Ísleifsdóttur og Gísla Birni […]
Aðalfundur BÍL haldinn í Kópavogi

[et_pb_section fb_built=“1″ admin_label=“section“ _builder_version=“3.22″][et_pb_row admin_label=“row“ _builder_version=“3.25″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“][et_pb_column type=“4_4″ _builder_version=“3.25″ custom_padding=“|||“ custom_padding__hover=“|||“][et_pb_text _builder_version=“4.4.1″] Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga var haldinn í Kópavogi laugardaginn 19. sept. Fundinum hafði verið frestað síðastliðið vor vegna Covid-19 en ákveðið var að halda fundinn nú með breyttu sniði og ljúka honum á einum degi. 12 aðildarfélög sendu fulltrúa og einnig […]
Protected: Upplýsingar – Aðalfundur 2020
There is no excerpt because this is a protected post.
Ljósa- og hljóðnámskeið í Þjóðleihúsinu

Þjóðleikhúsið stendur fyrir námskeiðum í annarsvegar lýsingu og hinsvegar hljóðvinnslu í leikhúsi nú í september. Námskeiðin eru ætluð þeim sem einhverja reynslu á viðkomandi sviði og eru hugsuð til að dýpka og víkka þekkingu viðkomandi. Námskeiðin verða haldin dagana 17. – 20. september sem hér segir (ATH! Tímar hafa breyst frá því þessi frétt birtist […]
Beckett í borginni

Kómedíuleikhúsið frumsýndi nýtt leikverk, Beðið eftir Beckett vestur í Haukadal í ágúst og heldur nú suður til höfuðborgarinnar. Tvær sýningar verða í Tjarnarbíó, þri. 8. og mið. 9. september kl. 20.00. Höfundur verksins og leikstjóri er Trausti Ólafsson en Elfar Logi Hannesson leikur aðalhlutverkið. Í þessu grátbroslega verki bíður Leikarinn eftir að írska leikskáldið Samuel […]
Könnun – hljóðnámskeið
Sviðslistaæfingar geta hafist á ný

Snertingar verða heimilar við æfingar í sviðslistum, tónlist og við kvikmyndatöku frá 28. ágúst nk. samkvæmt nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem birt var í dag. Hámarksfjöldi einstaklinga í sama rými mun áfram miðast við 100 einstaklinga og tveggja metra nándarregla verður áfram meginregla, þótt listamönnum sé heimilt að æfa verk […]
Beðið eftir Beckett

Kómedíuleikhúsið í samstarfi við Senuþjófinn frumsýnir 30. ágúst leikverkið Beðið eftir Beckett. Frumsýnt verður í leikhúsi Kómedíuleikhússins í Haukadal Dýrafirði. Höfundur verksins er Trausti Ólafsson sem jafnframt leikstýrir. Beðið eftir Beckett er guðdómleg kómedía sem fjallar um leikara nokkurn sem bíður eftir að Samuel Beckett skrifi fyrir sig nýtt leikrit. Á meðan á biðinni stendur […]
Könnun – ljósanámskeið
Aðalfundur BÍL 2020

Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga boðar hér með til aðalfundar, laugardaginn 19. september kl. 10.00 í Leikhúsinu, Funalind 2 í Kópavogi. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Aðalfundur er með breyttu sniði í ár af alkunnum ástæðum. Gert er ráð fyrir að fundinum verði lokið samdægurs. Ekki verður skipulögð gisting af hálfu Bandalagsins. Aðalfundi var frestað síðastliðið vor […]
Skráning á aðalfund BÍL 2020
Sumarlokun Þjónustumiðstöðvar í júlí

Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga verður lokuð vegna sumarfría frá 6. júlí út mánuðinn. Opnað verður að nýju þriðjudaginn 4. ágúst. Athugið að hægt er að panta vörur úr Leikhúsbúðinni og handrit úr Leikritasafninu en búast má við ögn lengri afgreiðslufresti en venjulega. Hægt er að hafa samband í netfangið info@leiklist.is.
Protected: Leiknáman – skráning
There is no excerpt because this is a protected post.
Leikfélag Fljótsdalshéraðs hlýtur menningarverðlaun

Menningarverðlaun Fljótsdalshéraðs voru veitt í annað sinn, 17. júní 2020 síðastliðinn. Verðlaunin eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar á liðnu ári. Hlutverk verðlaunanna er einnig að vera almenn hvatning til eflingar á menningar- og listastarfi í sveitarfélaginu. Fréttin er tekin af vef sveitarfélagsins þar sem […]
Aðalfundir leikfélaganna

Nokkur aðildarfélög BÍL hafa frestað aðalfundum sínum fram á haustið vegna Covid-19. Önnur hafa hinsvegar haldið aðalfundi síðustu daga og vikur. Aðalfundur Leikfélags Selfoss var haldinn í Litla leikhúsinu við Sigtún þann 3. júní síðastliðinn. Mæting á fundinn var mjög góð, létt yfir fólki og fundinum að vanda. Farið var yfir starfið á leikárinu sem […]
Opnað fyrir umsóknir í skólann eftir…
[et_pb_section fb_built=“1″ _builder_version=“4.9.10″ _module_preset=“default“][et_pb_row _builder_version=“4.9.10″ _module_preset=“default“][et_pb_column _builder_version=“4.9.10″ _module_preset=“default“ type=“4_4″][et_pb_countdown_timer _builder_version=“4.9.10″ _module_preset=“default“ date_time=“2022-03-10 16:00″ title=“Opnað fyrir umsóknir eftir…“ hover_enabled=“0″ sticky_enabled=“0″][/et_pb_countdown_timer][/et_pb_column][/et_pb_row][/et_pb_section]
Frestur til að skila styrkumsókn rennur út 10. júní

VIð minnum á að frestur til að skila styrkumsóknum fyrir liðið leikár rennur út miðvikudaginn 10. júní. Félög þurfa að skrá sig inn á vefinn til að fylla út umsókn. Ef spurningar eru varðandi innskráningu eða umsóknina sjálfa hafið samband við Þjónustumiðstöð í 551-6974 eða info@leiklist.is. Minnum einnig á að til að koma upptökum á […]
Leiklistarhátíð NEATA 2020 í Eistlandi

Þrátt fyrir veirufár og allt sem því hefur fylgt, er stefnt að því að halda elleftu NEATA leiklistarhátíðina í Eistlandi í ár. Hátíðin verður haldin á eyjunni Saaremaa undan ströndum Eistlands 10. – 13. september í haust. Eistar bjóða íslenskum leikhóp á hátíðina og verður gisting, fæði og ferðir innanlands fyrir allt að 10 manns, […]
Breyttur opnunartími í sumar

Opnunartími Þjónustumiðstöðvar breytist í sumar. Fastur opnunartími verður 9.00-12.00. Að öllu jöfnu er opið eftir hádegið en öruggast að hafa samband símleiðis áður í 551-6974 eða í info@leiklist.is.
Aðalfundur Leikfélags Selfoss 3. júní

Aðalfundur Leikfélags Selfoss 2020 verður haldinn miðvikudaginn 3. júní kl. 20:00 í Litla leikhúsinu við Sigtún. Viðhöfð verða venjuleg aðalfundarstörf, m.a. stjórnarkjör og inntaka nýrra félaga. Aðalfundir LS eru heimilislegir og í flesta staði léttir og skemmtilegir og allir eru velkomnir. Sérstaklega er vakin athygli á því að nýir félagar geta gengið formlega í félagið […]
